Hér kemur ein klassísk og góð! Það er í raun mjög einfalt að útbúa hakkbollur og hægt að setja ýmislegt gómsætt í blönduna. Piparosturinn gerir þær bragðmeiri og mér finnst einnig mikilvægt að krydda blönduna vel með góðum kryddum.
Mmm…

Spagettí og kjötbollur
Fyrir 4-6 manns
- 500 g nautahakk
- 1/3 laukur (saxaður)
- 1 piparostur (rifinn)
- 3 hvítlauksrif (rifin)
- 2 tsk. oregano krydd
- 1 tsk. salt
- 1 tsk. hvítlauksduft
- ½ tsk. pipar
- 1 msk. fljótandi nautakraftur
- 1 egg
- 50 g Ritzkex (mulið)
- 2 x Filippo Berio pastasósa með basil
- 150 ml rjómi
- Parmesan ostur
- 1 pk. Dececco spaghetti
- Filippo Berio ólífuolía
- Setjið hakk, lauk, piparost, hvítlauk, egg, ritzkex, kraft og krydd í hrærivélarskálina og hnoðið með K-inu (eða í höndunum).
- Mótið litlar bollur (um 1 msk) og steikið upp úr ólífuolíu þar til allar hliðar brúnast.
- Hellið þá pastasósunum og rjómanum yfir og leyfið að malla á meðan þið sjóðið spaghetti.
- Njótið með parmesanosti.

Þessar pastasósur frá Filippo Berio eru einstaklega ljúffengar!

Þessi færsla er unnin í samstarfi við Gerum daginn girnilegan!


































