Hér hafið þið nýjasta æðið mitt þegar kemur að avókadó-rist eða avókadó salati! Súpereinfalt og súpergott! Ég er búin að gera þetta nokkrum sinnum síðan ég prófaði fyrst og þetta er fullkominn hádegisverður og síðan er salatið reyndar líka geggjað á hrökkbrauð sem millimál!
Mmmm…

Avókadórist
Uppskrift dugar á 4-5 brauðsneiðar
- 4-5 sneiðar af súrdeigsbrauði með jalapeno og döðlum (fæst í bakaríinu í Hagkaup)
- Avókadó eggjasalat (sjá uppskrift að neðan)
- 150 g piccolo tómatar
- Chilli hunang (ég notaði frá Olifa en það fæst í Hagkaup)
Avókadó eggjasalat
- 4 harðsoðin egg
- 1 stórt og þroskað avókadó
- 1 msk. kóríander (saxað)
- 1 msk. sýrður rjómi
- 1 tsk. hunangs-sinnep
- ½ lime (safinn)
- Salt og pipar
- Skerið niður eggin og stappið avókadóið.
- Blandið öllu saman og setjið á ristaða súrdeigssneið.
- Toppið með niðurskornum piccolo tómötum og chilli hunangi.

Þessi færsla er unnin í samstarfi við Hagkaup!


































