Pistasíusnúðar



⌑ Samstarf ⌑
Kanilsnúðar með glassúr

Amerískir kanilsnúðar eru í miklu uppáhaldi hjá okkur fjölskyldunni og hef ég gert ótal útfærslur af slíkum í gegnum tíðina! Í grunninn er þetta alltaf svipað deig og aðferð en síðan eru það sannarlega fyllingarnar sem umbreyta þessu í ólíka snúða. Hér höfum við pistasíusnúða sem voru algjört dúndur og skemmtileg tilbreyting frá klassískum kanilsnúðum!

Ó svo góðir!

pistasíusnúðar

Pistasíusnúðar

Deig

  • 60 g smjör
  • 180 ml nýmjólk
  • 120 ml vatn
  • 1 pk. þurrger (um 12 g)
  • 50 g sykur (+ 1 msk)
  • 1 tsk. salt
  • 580 g Til hamingju hveiti (í rauðu pokunum)
  • 1 egg
  • 2 tsk. vanilludropar
  1. Bræðið smjörið og hellið mjólk og vatni saman við og hitið þar til ylvolgt, takið þá af hellunni.
  2. Bætið 1 msk. af sykri saman við ásamt þurrgersbréfinu, hrærið og leyfið blöndunni að standa í um 5 mínútur til að virkja gerið.
  3. Setjið næst sykur, salt og hveiti í hrærivélarskálina og notið krókinn til að byrja að blanda saman.
  4. Hellið gerblöndunni saman við þurrefnin ásamt því að bæta egginu og vanilludropum saman við.
  5. Hnoðið saman í hrærivélinni (eða höndunum) og leyfið deiginu að vera eins klístruðu og þið komist upp með. Penslið skál að innan með matarolíu og veltið deigkúlunni upp úr henni áður en þið setjið filmuplast og viskastykki yfir og hefið í 2 klukkustundir.
  6. Stráið þá smá hveiti á borðið og ýtið deiginu út í c.a 40 x 50 cm og setjið fyllinguna ofan á.

Fylling

  • 140 g smjör við stofuhita + 50 g brætt smjör
  • 180 g sykur
  • 150 g Til hamingju pistasíukjarnar
  • 4 tsk. kanill
  1. Setjið pistasíukjarnana í blandara og hakkið þá alveg niður þar til áferðin minnir á sand.
  2. Hrærið pistasíuduftinu saman við smjör, sykur og kanil og smyrjið jafnt yfir allt deigið.
  3. Rúllið deiginu upp og skiptið niður í 12 hluta.
  4. Smyrjið um 20×30 cm skúffukökuform að innan með vel af smjöri og raðið snúðunum þar í með jöfnu millibili.
  5. Leggið viskastykki yfir og hefið að nýju í 1 klukkustund.
  6. Smyrjið snúðana með bræddu smjörinu og bakið við 180°C í 20-25 mínútur eða þar til snúðarnir eru vel gylltir.

Pistasíutoppur

  • 100 g pistasíukrem (keypt tilbúið)
  • 100 g rjómaostur við stofuhita
  • 150 g flórsykur
  • 1 tsk. vanilludropar
  • Nokkrir Til hamingju pistasíukjarnar (saxaðir)
  1. Pískið allt saman nema söxuðu pistasíukjarnana og smyrjið yfir snúðana þegar þeir hafa aðeins kólnað niður.
  2. Toppið með söxuðum pistasíukjörnum og njótið.
Amerískir kanilsnúðar

Baksturinn er skyndilega orðinn mun skemmtilegri með brosandi hveitipoka!

pistasíusnúðar

Pistasíukrem fæst í stærri matvöruverslunum og einnig í Epal, Istanbúl Market á Grensásvegi og á fleiri stöðum.

amerískir kanilsnúðar með pistasíum
Deila uppskriftinni

2 Replies to “Pistasíusnúðar”

  1. Er krem það sama og smjör sem hægt er að fá frá íslensku fyrirtæki? Pistasiusmjör. Frekar til í búðum hér hjá mér. Kveðja Eygló

    1. Sæl kæra Eygló

      Smjörið er aðeins grófara en kremið. Myndi segja kremið sé sætara og mildara en alveg hægt að nota pistasíusmjörið líka eflaust 🙂
      Stundum erfitt að finna pistasíukrem, en það fæst stundum í Costco líka.

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Flokkar

0
0
Karfan þín
Karfan er tómNetverslun