Hér kemur einstaklega djúsí, ferskt og gott salat með nóg af krönsi! Ég elska japanskt kjúklingasalat með ristuðum núðlum og þegar ég var að vinna í World Class í Laugum í gamla daga þá var alltaf svo ótrúlega gott kjúklingasalat þar með mangó-chili dressingu á Laugar Café svo út frá þessum tveimur hugmyndum kom útfærslan af þessu salati hér fyrir ykkur!
Mmm…..

Kjúklingasalat með mangó- chilisósu
Fyrir um 5 manns
Kjúklingur og salat
- 1 kg Rose Poultry kjúklingalundir (um 1,5 poki)
- ½ flaska Caj P grillolía (Honey)
- ½ Iceberg haus
- 3 lúkur klettasalat
- ½-1 rauðlaukur
- 180 g piccolo tómatar
- 2 lúkur vínber
- 250 g jarðarber
- 1 x mangó
- 1 krukka fetaostur
- 170 g ristaðar núðlur
- Byrjið á að útbúa mangó- chilisósuna (sjá uppskrift að neðan), hægt er að gera hana líka deginum áður og geyma í kæli.
- Veltið kjúklingalundunum upp úr Caj P grillolíunni, geymið i kæli og undirbúið salatið á meðan.
- Brjótið núðlurnar niður og ristið á heitri pönnu, hrærið vel á meðan og færið síðan yfir á disk þegar þær byrja að brúnast og leyfið að kólna.
- Skerið grænmeti og ávexti niður og raðið á fat.
- Grillið kjúklingalundirnar og raðið síðan þeim ásamt ristuðum núðlum og fetaosti yfir salatið.
- Toppið með mangó- chilisósu og hafið síðan meira af henni til hliðar til að bera fram með salatinu.
Mangó- chilisósa uppskrift
- 2 x mangó (mjúkt og þroskað)
- 2 cm engiferrót (rifin)
- 3 msk. lime safi
- 3 msk. hrísgrjónaedik
- 6 msk. hlynsíróp
- 1-3 tsk. sambal oelek chilimauk (eftir smekk)
- Setjið öll hráefni saman í blandarann og maukið þar til slétt mangósósa hefur myndast.
- Geymið í kæli fram að notkun.
- Sósan geymist vel í kæli í nokkra daga og er góð með ýmsum öðrum mat og ostum.

Grillaður kjúklingur í kjúklingasalat getur ekki klikkað!

Mmmm….

Kjúklingasalat og hvítvín fer vel saman.

Þessi færsla er unnin í samstarfi við Gerum daginn girnilegan!


































