Haustið er skollið á með öllum sínum lægðum og kósýheitum! Maður dettur í annan gír í eldhúsinu þegar árstíðirnar breytast og súpur fara oftar á borð á mínu heimili í það minnsta. Hér höfum við undurgóða humarsúpu þar sem ég er búin að stytta mér leið með súpuna sjálfa svo eldamennskan einfaldast til muna!
Gæti ekki verið einfaldara, og betra!

Humarsúpa í haustskapi
Fyrir um 5 manns
- 4 x dós af Gríms humarsúpu
- 250 ml rjómi (+ 150 ml þeyttur)
- 200 ml hvítvín
- 700 g skelflettur humar
- 50 g smjör
- 3 hvítlauksrif
- 1 msk. ferskt timian
- ½ tsk. cheyenne pipar
- Salt, pipar, kraftur eftir smekk
- Jómfrúarolía
- Hitið upp súpudósirnar og bætið hvítvíni, rjóma og söxuðu timian saman við, leyfið að malla á meðan annað er undirbúið.
- Skolið, hreinsið og þerrið humarinn. Steikið snöggt upp úr smjörinu (ekki fullelda, heit súpan sér um það síðar), rífið hvítlauksrifin yfir og kryddið eftir smekk. Leggið til hliðar.
- Bætið nú cheyenne pipar í súpuna ásamt kryddi/krafti eftir smekk.
- Setjið humarhala í skálar og hellið sjóðheitri súpu yfir, toppið með þeyttum rjóma og jómfrúarolíu.

Gríms humarsúpan er undurgóð og ég mæli sannarlega með henni ef þið viljið stytta ykkur leið í súpugerðinni. Hún er góð ein og sér en síðan er algjör lúxus að smjörsteikja skelflettan humar að mínu mati og bæta í hana!



































