Eins og þið vitið þá ELSKA ég súkkulaðimús og get eflaust gert endalausar útfærslur af slíkri dýrð! Hér var ég að prófa eitthvað alveg nýtt og útkoman var stórkostleg!
Mmm…..einfalt, fljótlegt og gott

Kókos-súkkulaðimús
Uppskrift dugar í 4-6 glös (eftir stærð)
- 180 g Póló kex frá Frón
- 250 g suðusúkkulaði
- ¼ tsk. salt
- 2 msk. kókosolía
- 400 ml rjómi
- 140 g kókosmjólk (feit)
- Brómber (til skrauts)
- Ristaðar kókosflögur (til skrauts)
- Kælið kókosmjólkina í nokkrar klukkustundir áður en þið þeytið hana með rjómanum.
- Byrjið síðan á að setja kexið í blandara og saxa það niður þar til áferðin minnir á grófan sand.
- Setjið í botninn á glösunum, kúfuð matskeið í hvert.
- Bræðið næst suðusúkkulaði og þynnið síðan með kókosolíu og hrærið saltinu saman við, leyfið að kólna aðeins niður á meðan þið útbúið kókosrjómann.
- Þeytið saman kókosmjólk (notið þykka hlutann úr dósinni) og rjóma.
- Vefjið smá rjóma saman við súkkulaðiblönduna og síðan allri restinni.
- Skiptið músinni niður í glös og skreytið með brómberjum og kókosflögum.

Póló hefur verið eitt af mínum uppáhalds kexum frá því að ég man eftir mér og það passar fullkomlega með þessari mús!



































