Pylsuhorn



⌑ Samstarf ⌑
Pylsuhorn

Allt sem er einfalt og gott slær í gegn! Hér kemur mjög fljótleg útgáfa af pylsuhornum með sinnepssósu. Fullkominn réttur til að grípa með á Októberfest eða í annan hitting!

Mmmm….

októberfest hugmyndir

Pylsuhorn

16 stykki

  • 1 x upprúllað pizzadeig
  • 8 x pylsur
  • Sesamblanda/beyglukrydd
  • Egg
  • Sinnepssósa (sjá uppskrift að neðan)
  1. Hitið ofninn í 200°C.
  2. Skerið pizzadeigið í tvo hluta.
  3. Skerið síðan í kross og aftur kross yfir hvorn hluta til að mynda 2 x 8 þríhyrnda hluta (þeir þurfa ekki að vera fullkomnir/beinir).
  4. Skerið pylsurnar í tvennt og rúllið þeim inn í deig (byrjið við breiðari endann á deiginu).
  5. Raðið á bökunarplötu, penslið með pískuðu eggi og stráið kornum yfir.
  6. Bakið í um 15 mínútur eða þar til deigið gyllist og pylsurnar dökkna örlítið.
  7. Berið fram strax með sinnepssósunni.

Sinnepssósa uppskrift

  • 110 g Heinz majónes
  • 1 msk. Heinz Mild sinnep
  • 1 msk. Heinz tómatsósa
  • 1 tsk. hvítlauksduft
  • Salt, pipar, paprika eftir smekk
  1. Pískið allt saman og geymið í kæli fram að notkun.
sinnepssósa

Þessi færsla er unnin í samstarfi við Gerum daginn girnilegan!

Deila uppskriftinni

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Flokkar

0
0
Karfan þín
Karfan er tómNetverslun