Ofnbakað grænmeti, kjúklingur og djúsí rjómasósa er klassík. Hér var ég að prófa að nota rjómaost með svörtum pipar og útkoman var algjörlega dásamleg.

Kjúklingabringur í rjómasósu
Uppskrift fyrir um 4 manns
- Um 700 g kjúklingabringur (3-4 stk eftir stærð)
- 200 g rjómaostur með svörtum pipar frá Gott í matinn
- 500 ml rjómi frá Gott í matinn
- 3 hvítlauksrif
- 1 msk. púðursykur
- 1 msk. soyasósa
- 1 msk. sítrónusafi
- Salt, pipar og hvítlauksduft
- Ólífuolía og smjör til steikingar
- Ofnbakað grænmeti eftir smekk
- Skerið niður það rótargrænmeti sem ykkur þykir gott, setjið vel af ólífuolíu og kryddum yfir. Setjið inn í ofn við 190°C í um 40 mínútur.
- Skerið því næst bringurnar langsum í tvo hluta.
- Steikið þær upp úr blöndu af smjöri og ólífuolíu og brúnið vel allar hliðar, klárið síðan að elda þær með grænmetinu í ofninum í 15-20 mínútur.
- Notið sömu pönnu til að steikja hvítlauksrifin, bætið smá olíu og smjöri fyrst á pönnuna.
- Hellið þá rjóma og rjómaosti yfir og pískið þar til kekkjalaus sósa hefur myndast.
- Bragðbætið með púðursykri, soyasósu, sítrónusafa og kryddum.

Mmmm, mæli með að þið prófið!


























