Ef ykkur vantar eitthvað fljótlegt og gott fyrir hrekkjavökuna þá mæli ég með þessu poppi! Vinkonur mínar komu í heimsókn stuttu eftir að ég útbjó þetta og við eiginlega kláruðum þetta á undan börnunum og það segir það sem segja þarf, hahaha!
Nammi!

Hrekkjavökupopp
- 1 x Orville Butter örbylgjupopp
- 2 lúkur saltkringlur
- 2 lakkrísreimar (skornar niður)
- 1 poki Trolli ormahlaup
- 3 msk. fjólublátt súkkulaði
- 3 msk. grænt súkkulaði
- 3 msk. appelsínugult súkkulaði
- Sykuraugu
- Kökuskraut (má sleppa)
- Poppið poppið samkvæmt leiðbeiningum og hellið á ofnskúffu íklædda bökunarpappír.
- Bræðið súkkulaðið (ég notaði candy melts en hér má líka bara nota dökkt og hvítt súkkulaði ef þið finnið ekki litað, það fæst t.d í Hagkaup).
- Stráið saltkringlum og ormahlaupi yfir poppið, dreifið úr brædda súkkulaðinu og stráið kökuskrauti og augum yfir hér og þar.
- Leyfið súkkulaðinu að storkna áður en þið færið yfir í aðra skál.

Mæli með!

Þessi færsla er unnin í samstarfi við Gerum daginn girnilegan!


































