„Brookies“



⌑ Samstarf ⌑
Brookies

Brookies eru blanda af Brownies og Cookies sem er auðvitað algjörlega himnesk tvenna! Eina íslenska orðið sem mér datt í hug eru „Brökur“, blanda af brúnka og kökur en ég veit ekki alveg með það, hahaha!

Svoooo gott!

Brownie og cookie

„Brookies“

Smákökudeig

  • 120 g smjör
  • 100 g púðursykur
  • 50 g sykur
  • 2 egg
  • 2 tsk. vanilludropar
  • 190 g hveiti
  • 1 tsk. matarsódi
  • 150 g Síríus suðusúkkulaðidropar
  1. Brúnið smjörið og leggið til hliðar.
  2. Blandið báðum tegundum af sykri saman í hrærivélarskálinni og bætið saman við brúnuðu smjörinu, eggjum og vanilludropum.
  3. Næst má hræra hveiti og matarsóda saman við og loks vefja súkkulaðidropunum saman við með sleikju.

Brúnkudeig/Brownies

  • 130 g smjör
  • 200 g Síríus suðusúkkulaði
  • 200 g púðursykur
  • 2 egg
  • 1 tsk. vanilluropar
  • 80 g hveiti
  • 1 tsk. lyftiduft
  • ½ tsk. salt
  • 2 msk. bökunarkakó
  • 80 g Síríus suðusúkkulaðidropar
  1. Bræðið smjör og suðusúkkulaði saman, leggið til hliðar.
  2. Hrærið púðursykri, eggjum og vanilludropum saman í hrærivélarskálinni og hellið súkkulaðiblöndunni næst þar saman við.
  3. Blandið þá þurrefnunum saman við í nokkrum skömmtum og skafið niður á milli.  

Samsetning

  1. Hitið ofninn í 175°C og klæðið ferkantað kökuform (um 25×25 cm) að innan með bökunarpappír, spreyið með matarolíuspreyi.
  2. Hellið brúnkudeiginu í botninn og setjið síðan smákökudeigið í klípum jafnt yfir það allt.
  3. Bakið í um 50 mínútur eða þar til prjónn kemur út með smá kökumylsnu á endanum en ekki blautu deigi.
  4. Stráið súkkulaðidropunum yfir um leið og kakan kemur úr ofninum. Kælið og skerið síðan niður í bita.
brownie uppskrift

Suðusúkkulaði gerir lífið einfaldlega betra!

brookies
Deila uppskriftinni

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Flokkar

0
0
Karfan þín
Karfan er tómNetverslun