Kókos-karrý kjúklingaréttur



⌑ Samstarf ⌑
indverskt

Ef þú vilt elda undursamlegan indverskan mat heima hjá þér á 15 mínútum þá mæli ég með þessum rétti hér!

Svo gott og fljótlegt!

fljótlegur kvöldmatur

Kókos-karrý kjúklingaréttur

Fyrir um 4 manns

  • 700 g kjúklingabringur/lundir
  • 1 krukka Stonewall Kitchen Coconut Curry Simmering Sauce (517 g)
  • 1 dós kókosmjólk (um 400 g)
  • Naan brauð
  • 1 krukka Stonewall Kitchen Mango Chutney
  • Salt, pipar, hvítlauksduft
  • Ólífuolía til steikingar
  1. Skerið kjúklinginn í bita og steikið upp úr ólífuolíu, kryddið eftir smekk.
  2. Hellið kókos karrý sósunni yfir ásamt kókosmjólkinni og leyfið að malla nokkrar mínútur, hrærið reglulega í á meðan.
  3. Berið fram með ristuðu naan brauði með Mango Chutney.
kvöldmatur uppskrift

Þessi sósa er undursamleg, smá sterk en með því að bæta kókosmjólkinni saman við mildum við bragðið. Það má líka setja rjóma í stað kókosmjólkur svo endilega prófið ykkur áfram með slíkt!

hvað á að vera í matinn

Mango Chutney er síðan alls ekki það sama og Mango Chutney! Ef þið hafið ekki smakkað þetta hér frá Stonewall Kitchen þá eruð þið að missa af miklu! Gæðin í öllu frá þessu fyrirtæki eru bara „next level“ og það skín svo skært í gegn í bragðinu!

kvöldmatarhugmyndir

Ristað naan með Mango Chutney er æði!

indverskur kjúklingaréttur
Deila uppskriftinni

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Flokkar

0
0
Karfan þín
Karfan er tómNetverslun