Í dag er 1.nóvember og þetta er dagurinn sem ég leyfi mér að komast í jólaskap þó svo ég fari kannski ekki alla leið í skreytinum fyrr en aðeins síðar í nóvember. Það er því tilvalið að skella inn fyrstu hátíðar uppskriftinni þetta árið þar sem ég nota mjólkursúkkulaði með piparkökum í ostaköku og útkoman er guðdómleg!
Mmmmm!

Ostakaka með piparkökukeim
Botn
- 200 g kanilkex
- 80 g smjör
- Setjið kanilkex í blandara og mixið þar til áferðin minnir á sand.
- Bræðið smjörið og blandið saman við kexið.
- Setjið bökunarpappír í botninn á um 22 cm smelluformi, spreyið með matarolíuspreyi innan á hliðarnar.
- Hellið kexblöndunni í botninn, þrýstið niður með glasi/öðru og aðeins upp hliðarnar til að mynda kant.
- Kælið á meðan þið útbúið fyllinguna.
Fylling
- 4 matarlímsblöð + vatn
- 500 g rjómaostur við stofuhita
- 150 g sykur
- 100 g flórsykur
- 2 tsk. vanillusykur
- 4 stk Síríus rjómasúkkulaði með piparkökum (hátíðarútgáfa)
- 250 ml þeyttur rjómi
- 100 g Nóakropp
- Leggið matarlímsblöðin í bleyti í kalt vatn á meðan þið takið til önnur hráefni.
- Hitið þá 50 ml af vatni að suðu, takið matarlímsblöðin upp úr kalda vatninu og setjið í pottinn, hrærið á milli og takið síðan af hellunni þegar öll fjögur matarlímsblöðin eru uppleyst, leyfið að ná stofuhita á meðan þið undirbúið fyllinguna (gott að hella úr pottinum í skál og geyma þannig fyrir hraðari kælingu).
- Þeytið saman rjómaost, sykur, flórsykur og vanillusykur.
- Bræðið súkkulaðið og leggið til hliðar.
- Hellið gelatínblöndunni saman við rjómaostablönduna í mjórri bunu og hrærið á lágum hraða.
- Næst fer brætt súkkulaðið saman við og blandið vel.
- Vefjið þá þeytta rjómanum saman við súkkulaðiblönduna með sleikju þar til jafnt og slétt.
- Bætið að lokum Nóakroppinu saman við og hellið blöndunni ofan á kexbotninn og sléttið úr.
- Kælið í að minnsta kosti 4 klukkustundir eða yfir nótt áður en þið skreytið.
Skreyting
- Brómber
- Nóakropp
- 100 g Nóa Töggur + 2 msk. rjómi
- Blóm (má sleppa)
- Bræðið saman Töggur og rjóma þar til slétt karamellusósa hefur myndast, leggið til hliðar.
- Skreytið með berjum, Nóakroppi, karamellusósu og blómum.

Þetta súkkulaði er æði!

Það er ekkert mál að nota matarlím, alls ekki hræðast það í uppskriftum. Það er svo miklu fallegra að skera ostaköku sem heldur lagi og bera slíka á borð. Bara skella blöðunum í kalt vatn til að mýkja þau, leysa síðan upp í sjóðandi vatni og leyfa að ná stofuhita áður en blöndunni er hellt saman við fyllinguna, ísí písí!



































