Þessi kaka er blanda af hinni fullkomnu vetrarköku og jólakósý! Venosta Bio eplin eru dásamleg og mildari en mörg önnur fyrir kökugerð og þegar kanill, negull og önnur dásamlegheit blandast saman verður útkoman æðisleg!
Namm…

Hugmyndin kemur frá Sally’s Baking Addiction en það ein af mínum uppáhalds erlendu vefsíðum!
Klessukaka með kanil og eplum
Klessukaka
- 2 stk Venosta Bio epli
- 2 msk. hlynsýróp
- ½ tsk. kanill
- 220 g smjör
- 290 g hveiti
- 1 tsk. lyftiduft
- 1 tsk. kanill
- ½ tsk. salt
- ¼ tsk. negull
- 330 g púðursykur
- 2 egg
- 2 tsk. vanilludropar
- Hitið ofninn í 175°C, klæðið 30×40 cm skúffukökuform að innan með bökunarpappír og spreyið með matarolíuspreyi.
- Byrjið á því að brúna smjörið (hægt að brúna bæði fyrir köku og krem á sama tíma til að flýta fyrir, taka svo 4 msk. frá til að geyma fyrir kremið þegar tilbúið). Til að brúna smjör má hafa það á meðalhita í um 5 mínútur eða þar til það freyðir og byrjar að ilma með karamellukeim. Hellið smjörinu úr pottinum í aðra skál/ílát á meðan þið undirbúið annað og geymið pönnuna til að steikja á henni eplin.
- Flysjið eplin og skerið í litla teninga, veltið upp úr hlynsýrópi og kanil, steikið á pönnunni í afgangs smjörinu í um 5 mínútur.
- Setjið hveiti, lyftiduft, kanil, salt og negul í hrærivélarskál og blandið með K-inu.
- Bætið púðursykri, brúnaða smjörinu, eggjum og vanilludropum saman við.
- Að lokum fara eplin útí og þá má setja deigið í formið.
- Deigið er þykkt, smá eins og smákökudeig og þannig á það að vera.
- Sléttið úr eins og unnt er og bakið í um 30 mínútur eða þar til prjónn kemur út með smá kökumylsnu á endanum, ekki blautu deigi.
- Kælið kökuna síðan alveg áður en þið setjið á hana glassúrinn.
Glassúr
- 4 msk. brúnað smjör
- 180 g flórsykur
- 5 msk. rjómi
- 2 tsk. vanilludropar
- Pískið allt saman og smyrjið þunnu lagi yfir alla kökuna.
- Toppið með smá kanilsykri ef þess er óskað.

Þessi epli eru dásamleg!

Þessi færsla er unnin í samstarfi við Gerum daginn girnilegan!


































