Hreindýra smákökur



⌑ Samstarf ⌑
fljótlegar smákökur fyrir jólin

Það þarf sannarlega ekki að vera flókið til að vera gómsætt og skemmtilegt í undirbúningi. Litla mín og vinkonur voru yfir sig heillaðar af þessari útgáfu af hreindýra smákökum.

Svo einföld og skemmtileg hugmynd og þið veljið ykkar uppáhalds smákökudeig úr þessari ljúffengu línu!

lakkrís smákökur

Hreindýra smákökur

16-18 stykki

  • 1 x Nóa Síríus smákökudeig frá Kötlu að eigin vali (hér er notað Eitt Sett deig)
  • 80 g Síríus suðusúkkulaði
  • Saltkringlur
  • Rautt smartís/nammi/sykurperlur
  • Sykuraugu
  1. Hitið ofninn í 180°C.
  2. Skerið kökudeigið niður í um 1 cm þykkar sneiðar.
  3. Raðið á bökunarplötu íklædda bökunarpappír.
  4. Bakið í 10-12 mínútur.
  5. Jafnið kökurnar með því að snúa yfir þær glasi um leið og þær koma úr ofninum.
  6. Kælið áður en þið skreytið.
  7. Bræðið suðusúkkulaðið og smyrjið yfir miðja kökuna, skiljið eftir kant af köku allan hringinn samt.
  8. Leggið saltkringlur í súkkulaðið til að mynda horn og staðsetjið augu og nef þar sem ykkur þykir fallegt.
Bestu smákökudeigin

Nóa Síríus smákökudeigin frá Kötlu eru algjörlega himnesk og það er svo mikil snilld að geta einfaldað sér lífið með slíkum í undirbúningi jólanna.

smákökur

Mmm…

tilbúið kökudeig
Deila uppskriftinni

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Flokkar

0
0
Karfan þín
Karfan er tómNetverslun