Kalkúnn í marineringu



⌑ Samstarf ⌑
hvernig á að elda kalkún

Ég hef eldað kalkún á mismunandi vegu í gegnum tíðina og það er alltaf gaman að prófa eitthvað nýtt í slíkum efnum. Hér er ég að notast við marineringar-kit ef svo má að orði komast sem kom alveg frábærlega vel út. Kjötið verður svo djúsí og gott af því að liggja í saltblöndunni að þessari aðferð get ég sannarlega mælt með fyrir komandi hátíðsdaga!

Ohhh svo gott!

Kalkúnaveisla

Kalkúnn í marineringu


Fyrir 8-10 manns

Kalkúnn eldun

  • 5-6 kg heill ferskur kalkúnn
  • 1 x Urban Accents Brown Butter Turkey Brine & Rub Kit
  • Vatn
  • Ólífuolía
  1. Byrjið á því að sjóða saltblönduna (Brine) í 1 líter af vatni í um 5 mínútur og takið svo af hellunni. Hellið þá um 4 lítrum af köldu vatni saman við og leyfið blöndunni að kólna alveg niður áður en þið setjið hana yfir fuglinn.
  2. Komið kalkúninum fyrir í stóra pokanum og setjið hann í honum í stóran steikarpott/annað sem heldur við hliðarnar.
  3. Hellið saltblöndunni (Brine) yfir kalkúninn og bætið síðan við köldu vatni þar til hann fer alveg á kaf í blöndu. Ég bætti um 3 lítrum til viðbótar við í þessu tilfelli en það gæti verið minna/meira hjá ykkur eftir því hvað kalkúnninn er stór.
  4. Lokið pokanum vel og setjið kalkúninn í kæli í 30-60 mínútur fyrir hvert kíló. Fyrir 5-6 kg kalkún má hann því vera í saltblöndunni í 3-5 klukkustundir.
  5. Hitið ofninn í 160°C.
  6. Hellið vatninu af kalkúninum, skolið hann og þerrið.
  7. Komið honum nú fyrir í stórum steikarpotti/ofnskúffu, berið á hann ólífuolíu og kryddið jafnt á öllum hliðum með kryddblöndunni sem fylgir með í pakkanum.
  8. Setjið lok á steikarpottinn eða álpappír laust yfir hann svo það lofti aðeins um allan fuglinn.
  9. Eldið kalkúninn í um 30-40 mínútur fyrir hvert kíló eða þar til kjarnhiti nær um 70°C.
  10. Takið álpappírinn af síðustu 20 mínúturnar eða svo og hækkið hitann í 220°C til að brúna hann aðeins.
  11. Mikilvægt er að leyfa honum að standa undir álpappírsörk í að minnsta kosti 20-30 mínútur áður en þið skerið kjötið. Kjarnhitinn hækkar yfirleitt alltaf um 1-3 gráður eftir að þið takið hann úr ofninum svo hafið það í huga ef þið eruð að nota kjöthitamæli (best að mæla milli upplæris og bringu).

Sætkartöflumús uppskrift

  • 1,5 kg sætar kartöflur
  • 100 g smjör við stofuhita
  • 100 g púðursykur
  • 2 msk. rjómi
  • 2 egg (pískuð)
  • 2 tsk. vanilludropar
  • ½ tsk. kanill
  • 1 x Stonewall Kithen Apple Crisp Topping Mix + 140 g smjör við stofuhita.

  1. Flysjið kartöflurnar, skerið í bita og sjóðið þar til þær mýkjast.
  2. Hellið vatninu af þeim og setjið kartöflurnar í hrærivélarskálina.
  3. Hrærið á lægsta hraða með K-inu og bætið öllum öðrum hráefnum saman við nema deiginu (Topping) sem fer ofan á.
  4. Hellið í eldfast mót og útbúið deigið (Topping) á meðan (það má líka gera það á meðan kartöflurnar sjóða).
  5. Hrærið saman smjöri og Apple Crisp Topping Mix, dreifið jafnt yfir kartöflumúsina og bakið í 170°C heitum ofni í um 30 mínútur eða þar til toppurinn byrjar að gyllast.

Fylling fyrir kalkún

  • ½  x Urban Accents Traditional Stuffing Mix
  • ½ laukur
  • 2 lúkur sellerí (niðurskorið)
  • 100 g smjör
  • 300 ml kjúklingasoð
  • Salt og pipar

  1. Skerið niður lauk og sellerí, steikið upp úr smjöri þar til það mýkist.
  2. Hellið helmingnum af brauðteningunum (Stuffing Mix) úr pokanum saman við ásamt kjúklingasoðinu og kryddið með salti og pipar eftir smekk.
  3. Teningarnir drekka í sig vökvann og mýkjast, færið yfir í eldfast mót og hitið í ofni við 170°C í um 20 mínútur. Berið fram með kalkúninum sem meðlæti (einnig má nota þetta sem fyllingu til að setja inn í hann).

Kalkúnasósa uppskrift

  • 350 g kastaníusveppir
  • 2 skalottlaukar
  • 80 g smjör
  • 750 ml rjómi
  • 1 msk. gráðaostur
  • 2 msk. fljótandi kraftur
  • 1 tsk. Stonewall Kitchen Holiday Cranberry Sauce
  • 1 msk. púðursykur
  • 2 tsk. timian (ferskt – saxað)
  • Salt og pipar eftir smekk
  • Maizenamjöl
  1. Skerið niður sveppi og saxið niður lauk.
  2. Steikið hvorutveggja upp úr smjörinu þar til mýkist.
  3. Hellið þá rjómanum yfir ásamt öðrum hráefnum.
  4. Blandið vel saman, kryddið eftir smekk og þykkið með maizenamjöli (2-3 msk).

Annað meðlæti

  • Stonewall Kitchen Holiday Spiced Cranberry Sauce
  • Beikonvafinn aspas
Kalkúnn

Þessar dásamlegu vörur frá Stonewall Kitchen og Urban Accents eru fullkomnar fyrir hátíðirnar!

marinering fyrir kalkún

Hér er saltblandan, fyrst er kalkúnninn lagður í saltvatnsblöndu í poka og síðan kryddaður með kryddinu sem fylgir með. Ekkert annað auka stúss, svo einfalt og undur ljúffengt.

sætkartöflumús

Hér gerði ég klassísku sætkartöflumúsina mína nema notaði „Apple Crisp Topping“ í staðinn fyrir pekanhnetur og deig sem ég geri sjálf og útkoman var æðisleg!

fylling í kalkún

„Stuffing Mix“ var einnig einfalt og ljúffengt.

meðlæti með kalkún

Góð kalkúnasósa með sveppum og beikonvafinn aspas passa síðan einstaklega vel með kalkúninum.

Kalkúnn eldun
Deila uppskriftinni

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Flokkar

0
0
Karfan þín
Karfan er tómNetverslun