Ollý tengdamamma á heiðurinn af þessari uppskrift. Hér er á ferðinni klassísk rjómaterta með kokteilávöxtum nema hún setur líka búðingsduft í rjómann og það gerir þessa köku bragðmeiri og skemmtilegri heldur en bara með þeyttum rjóma að mínu mati.
Mmm….

Rjómaterta með kokteilávöxtum
Svampbotnar
- 5 egg
- 180 g sykur
- 100 g hveiti
- 60 g kartöflumjöl
- 1 tsk. lyftiduft
- Hitið ofninn í 175°C.
- Klippið bökunarpappír í botninn á 2 x 20 cm kökuformum og spreyið vel að innan með matarolíuspreyi.
- Þeytið saman egg og sykur þar til létt og ljós blanda myndast.
- Sigtið hveiti, kartöflumjöl og lyftiduft í blönduna og hrærið mjög rólega saman.
- Skiptið jafnt niður í formin og bakið í 18-20 mínútur.
- Kælið botnana áður en þið setjið fyllinguna á milli.
Fylling
- 500 ml rjómi
- 2 msk. vanillu búðingsduft
- 2 msk. súkkulaði búðingsduft
- 1 dós Del Monte kokteilávextir (420 g)
- Léttþeytið saman rjóma og báðar tegundir af búðingsdufti (blandan mun þykkna meira eftir þeytingu þegar búðingurinn tekur sig).
- Hellið safanum af ávöxtunum (geymið hann) og blandið þeim saman við rjómablönduna.
- Setjið síðan um helming safans úr dósinni yfir neðri botninn til að bleyta í honum.
- Næst má setja helminginn af rjómablöndunni yfir botninn og slétta úr og endurtaka síðan botn, safi, fylling.
Skreyting
- 350 ml rjómi
- 1 dós Del Monte kokteilávextir (420 g)
- 20 g dökkt súkkulaði
- Þeytið rjómann og setjið í sprautupoka með stórum stjörnstút.
- Sprautið línur þétt upp hliðarnar aðeins inn á toppinn og lokið svo öllum „endunum“ með því að sprauta fallegan kant yst á kökuna.
- Hellið safanum af ávöxtunum og skreytið með því að setja ávextina yfir toppinn.
- Saxið að lokum súkkulaðið og dreifið yfir ávextina.

Kokteilávextirnir frá Del Monte eru þeir allra bestu og spila lykilhlutverk í þessari tertu ásamt safanum úr dósinni.

Það má sleppa því að nota búðingsduft og hafa aðeins þeyttan rjóma ef þið kjósið heldur.



































