Burrata kósýheit



⌑ Samstarf ⌑
burrata ostur

Ég sá þessa hugmynd á Instagram og fannst hún of girnilega til að prófa ekki! Sé aldeilis ekki eftir því þar sem þetta var svo fjótlegt og undur ljúffengt, þið verðið að prófa þetta!

Mmm….

burrata ostur og pestó

Burrata kósýheit

  • 2 x stór burrata kúla
  • 1 box piccolo tómatar
  • 1 msk. Filippo Berio jómfrúarolía
  • 1 msk. söxuð basilíka
  • ½ tsk. salt
  • Nokkrar teskeiðar Filippo Berio grænt pestó
  • 3 hráskinkusneiðar
  • 1 lúka ristaðar furuhnetur
  • Baguette brauð

  1. Byrjið á því að setja hráskinkusneiðarnar á bökunarpappír í 180°C heitan ofn í 10-15 mínútur eða þar til þær verða stökkar.
  2. Komið burrata kúlunum fyrir á bretti/disk og dreifið úr þeim.
  3. Skerið niður tómatana og blandið saman í skál með jómfrúarolíu, basilíku og salti, dreifið yfir burrata kúlurnar.
  4. Setjið næst ristaðar furuhnetur yfir og skerið stökka skinkuna niður og dreifið yfir að lokum.
  5. Njótið með baguette brauði eða kexi.
burrata og pestó

Burrata, tómatar og pestó eru heilög þrenna!

burrata og hvítvín

Ekki skemmir að hafa hvítvín með!

burrata

Þessi færsla er unnin í samstarfi við Gerum daginn girnilegan!

Deila uppskriftinni

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Flokkar

0
0
Karfan þín
Karfan er tómNetverslun