Ávaxtasalat sem hentar með ýmsu



⌑ Samstarf ⌑
waldorf salat eða ávaxtasalat

Hér höfum við ferskt og gott ávaxtasalat sem er frábært meðlæti með ýmsum mat og má einnig hreinilega borða eitt og sér! Þetta er ákveðin útgáfa af Waldorf salati en mandarínurnar gefa þessu dásamlegt nýtt bragð!

Mmmm….

meðlæti með hátíðarmat

Ávaxtasalat uppskrift

  • 60 g Philadelphia rjómaostur við stofuhita
  • 80 g grísk jógúrt
  • 70 g Heinz majónes
  • 50 g sykur
  • 3 x epli (jonagold/pink lady)
  • 15 stk græn vínber
  • 15 stk rauð vínber
  • 1 x lítil ananasdós (4 hringir)
  • 3 x mandarína
  • 30 g dökkt súkkulaði
  1. Pískið saman rjómaost, jógúrt, majónes og sykur.
  2. Flysjið og skerið eplin í litla teninga.
  3. Skerið vínber og ananas niður.
  4. Takið utan af mandarínunum og snyrtið bátana aðeins til, ekki nota þá sem eru með steinum/takið steinana úr.
  5. Saxið súkkulaðið smátt.
  6. Blandið eplum, vínberjum og ananas saman við majónesblönduna með sleikju.
  7. Að lokum má setja mandarínubáta og 2/3 af súkkulaðinu saman við og blanda varlega við með sleikju.
  8. Setjið í fallega skál/disk og stráið restinni af súkkulaðinu yfir til skrauts.
waldorfsalat með mandarínum

Ávaxtasalat slær alltaf í gegn!

ávaxtasalat

Þessi færsla er unnin í samstarfi við Gerum daginn girnilegan!

Deila uppskriftinni

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Flokkar

0
0
Karfan þín
Karfan er tómNetverslun