Ef ykkur vantar eitthvað einfalt og um leið afar ljúffengt, þá gæti þessi ostakaka verið það sem þið eruð að leita af!
Klárlega góður eftirréttur fyrir hátíðirnar.

Súkkulaði- og heslihnetu ostakaka
Uppskrift dugar í 6-8 glös
- 16 x Oreo kexkökur
- 60 g brætt smjör
- 300 g Philadelphia rjómaostur við stofuhita
- 80 g flórsykur
- 1 krukka Nusica heslihnetusúkkulaði (400 g)
- 2 tsk. vanilludropar
- 400 ml þeyttur rjómi + 300 ml til skrauts
- Jarðarber til skrauts
- Setjið Oreokex í matvinnsluvél/blandara og myljið niður þar til áferðin minnir á sand.
- Blandið brættu smjöri saman við kexmylsnuna og skiptið niður í glösin.
- Þeytið næst rjómaost, flórsykur, Nusica og vanilludropa saman þar til ljósbrún og jöfn blanda myndast.
- Vefjið þá saman við 400 ml af þeyttum rjóma og sprautið í glösin.
- Skreytið með þeyttum rjóma, smá Oreo mylsnu og jarðarberi.

Nokkrum númerum of gott sko!

Þessi færsla er unnin í samstarfi við Gerum daginn girnilegan!


































