Pestóstangir



⌑ Samstarf ⌑
snarl

Einfalt, fljótlegt og gott hljómar vel á aðventunni! Þessar pestóstangir passa vel fyrir alls kyns tilefni!

Namm!

pestóstangir

Pestóstangir

Um 12 stykki

  • 1 x tilbúin pizzadeigkúla (250 g)
  • ½ krukka rautt Filippo Berio pestó + 1 msk
  • Rifinn ostur
  • 1 egg
  • Sesamfræ
  • 3 msk. sýrður rjómi
  • 1 msk. sítrónusafi
  1. Hitið ofninn í 200°C.
  2. Fletjið pizzadeigið út í c.a 30×30 cm.
  3. Smyrjið það með pestó og setjið rifinn ost á helminginn.
  4. Klemmið hinn helminginn yfir ostinn, þjappið aðeins saman og skerið í ræmur.
  5. Snúið upp á hverja ræmu og leggið á bökunarpappír á ofnplötu.
  6. Pískið eggið og penslið stangirnar, stráið smá sesamfræjum yfir.
  7. Bakið í 12-15 mínútur eða þar til stangirnar gyllast.
  8. Pískið á meðan saman sýrðan rjóma, 1 msk. af pestó og sítrónusafa, dýfið síðan nýbökuðum pestóstöngum í þessa ídýfu.
brauðstangir með pestó

Pestó gerir lífið einfaldlega betra.

brauðstangir og bjór

Pestóstangir, ídýfa og áfengislaus bjór eru fullkomin þrenna í skammdeginu!

einfalt nesti

Þessi færsla er unnin í samstarfi við Gerum daginn girnilegan.

Deila uppskriftinni

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Flokkar

0
0
Karfan þín
Karfan er tómNetverslun