Marengskrans með sérrírjóma



⌑ Samstarf ⌑
jólin eftirréttur

Þessi marengs minnir mig á sérrí-triffle sem amma Guðrún gerði oft í gamla daga. Það er bara eitthvað við sérrí og makkarónur sem er svo gott! Hér er einfaldur marengs með rjóma en sérríið, makkarónurnar og berin fullkomna þessa blöndu.

Svo hátíðlegt og fallegt!

jólamarengs

Marengskrans með sérrírjóma

Marengsbotn

  • 6 eggjahvítur
  • 330 g sykur
  • 1 tsk. hvítvínsedik
  • 1 tsk. kartöflumjöl
  1. Hitið ofninn í 140°C og teiknið um 30 cm hring á bökunarpappír og annan um 20 cm inn í hann.
  2. Þeytið eggjahvíturnar þar til þær byrja aðeins að freyða og bætið sykrinum saman við í nokkrum skömmtum, þeytið nokkrar mínútur eða þar til blandan verður nægilega stíf til að topparnir haldi sér.
  3. Hrærið kartöflumjöl og hvítvínsedik saman og blandið við marengsblönduna í lokin, þeytið stutta stund og setjið síðan blönduna í stóran sprautupoka.
  4. Sprautið eftir hringnum sem þið teiknuðuð (ekki alveg út að köntunum samt því marengsinn stækkar við bakstur).
  5. Sléttið úr eins og unnt er og rennið matskeið eftir toppnum til að slétta/gera pláss fyrir fyllinguna.
  6. Bakið í 70 mínútur og slökkvið þá á ofninum og leyfið marengsinum að kólna niður með honum.

Fylling og skreyting

  • 500 ml þeyttur rjómi + 40 ml rjómi fyrir súkkulaðibráð
  • 2 msk. Harveys Bristol Cream sérrí
  • 5 makkarónukökur (muldar)
  • 70 g dökkt súkkulaði
  • 250 g Driscolls jarðarber
  • 125 g Driscolls hindber
  • 125 g Driscolls brómber
  • 125 g Driscolls rifsber
  • 125 g Driscolls bláber
  • Rósmaríngreinar og flórsykur til skrauts
  1. Saxið dökkt súkkulaði smátt, hitið 40 ml af rjóma að suðu og hellið yfir. Pískið þar til slétt súkkulaðibráð hefur myndast, leyfið blöndunni aðeins að kólna niður áður en þið setjið yfir rjómann.
  2. Skerið jarðarberin niður í smærri bita og takið önnur ber til.
  3. Blandið sérrí og makkarónukökum varlega saman við þeytta rjómann með sleikju.
  4. Smyrjið jafnt yfir allan toppinn á marengshringnum.
  5. Dreifið berjunum jafnt yfir toppinn ásamt súkkulaðibráðinni.
  6. Stingið rósmaríngreinum hér og þar til skrauts ásamt því að sigta flórsykur yfir.
  7. Kælið í að minnsta kosti 4 klukkustundir. Einnig er gott að setja rjómann yfir, kæla yfir nótt og setja ber + súkkulaði yfir rjómann næsta dag.
áramóta eftirréttur

Elsku fallegu Driscolls berin klikka ekki!

marengs með sérrí

Mmmm…

marengskrans

Þessi færsla er unnin í samstarfi við Gerum daginn girnilegan!

Deila uppskriftinni

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Flokkar

0
0
Karfan þín
Karfan er tómNetverslun