Á aðventunni er mikið um sætindi og góðan mat um allt! Það er auðvelt að halda smá jafnvægi á mataræðinu með því að útbúa svona holla og gómsæta mola sem eru algjört nammi en miklu hollari en margt annað!
Mæli með að þið prófið þessa dásemd!

Hollari jólamolar með appelsínukeim
Um 30 stykki
- 300 g þurrkaðar döðlur
- 200 g möndlur (heilar m.hýði)
- 2 msk. chiafræ
- 1 msk. bökunarkakó
- 2 msk. kókosolía (brædd) + 1 msk. í hjúpinn
- 1 msk. appelsínubörkur (rifinn smátt)
- 200 g 70% Síríus suðusúkkulaði
- Pekanhnetur, pistasíukjarnar, kókosflögur, þurrkuð blóm, appelsínubörkur eða annað sem ykkur dettur í hug sem skraut.
- Byrjið á því að sjóða vatn og hella yfir döðlurnar. Leyfið þeim að standa í 15 mínútur í heita vatninu og hellið því þá af.
- Setjið möndlurnar í matvinnsluvélina og hakkið smátt niður.
- Setjið næst döðlur, chiafræ, kakó, kókosolíu og appelsínubörk saman við og blandið öllu vel saman.
- Rúllið í litlar kúlur og frystið í um 15 mínútur.
- Bræðið 70% súkkulaðið og þynnið með kókosolíunni.
- Dýfið hverri kúlu í súkkulaðibráðina, leggið á bökunarpappír og skreytið (sjá hugmyndir að ofan).
- Leyfið súkkulaðinu að storkna og geymið síðan í kæli eða frysti.

70% súkkulaðið hentar fullkomlega í svona hollustukúlur.

Litríkar og fallegar!

Mmmm…



































