Léttreyktur lambahryggur með rauðvíns-sveppasósu



⌑ Samstarf ⌑
jólamatur

Léttreyktur lambahryggur er dásamlegur hátíðarmatur! Ég var að elda slíkan í fyrsta skipti og ákvað að nota sömu aðferð og ég hef gert með hamborgarhrygg og útkoman var æðisleg.

Mmmm….

léttreyktur lambahryggur eldun

Léttreyktur lambahryggur með rauðvíns-sveppasósu

Léttreyktur lambahryggur eldun

  • 2-2,5 kg léttreyktur lambahryggur
  • 80 g púðursykur
  • 1 tsk. dijon sinnep
  • 1 tsk. tómatsósa
  • 2 msk. rjómi
  1. Útbúið gljáann með því að sjóða saman púðursykur, sinnep, tómatsósu og rjóma þar til sykurinn er uppleystur.
  2. Hitið ofninn í 150°C, setjið ofnskúffu neðst og grind fyrir ofan hana.
  3. Hellið 1 lítra af vatni í ofnskúffuna og komið hryggnum fyrir á grindinni fyrir ofan.
  4. Penslið hrygginn með þunnu lagi af gljáa og endurtakið 1-2 x í viðbót á meðan hann eldast.
  5. Eldið þar til kjarnhiti er um 72°C, c.a 45 mínútur fyrir hvert kíló ef þið eruð ekki með kjöthitamæli.
  6. Leyfið hryggnum síðan að hvíla í 15 mínútur þegar hann er tilbúinn áður en þið skerið í hann.

Rauðvíns- sveppasósa uppskrift

  • 250 g kastaníusveppir
  • 2 x skalottlaukur
  • 2 x hvítlauksrif
  • 60 g smjör
  • 50 ml Muga rauðvín
  • 350 ml soð úr skúffunni fyrir neðan hrygginn
  • 2 msk. Oscar LAM kraftur
  • 2 msk. gljái (sami og þið penslið hrygginn með)
  • 250 ml rjómi
  • 1 msk. timian
  • Salt og pipar eftir smekk
  • Maizena og sósulitur
  1. Saxið skalottlauk og hvítlauksrif og skerið sveppina niður.
  2. Steikið sveppi og lauk upp úr smjöri þar til mýkist og bætið þá hvítlauknum saman við.
  3. Hellið rauðvíninu útá og hækkið hitann, leyfið því að gufa upp og bætið þá soði, krafti, gljáa, rjóma og söxuðu timian í pottinn.
  4. Hrærið vel saman og smakkið til með salti, pipar og meiri lambakrafti eftir smekk.

Sykurbrúnaðar kartöflur

  • 150 g sykur
  • 50 g smjör
  • 1 kg soðnar, flysjaðar kartöflur
  1. Setjið sykurinn á pönnu á háum hita.
  2. Hristið pönnuna reglulega þegar sykurinn byrjar að bráðna og þegar hann fer að sjóða aðeins, má lækka niður í hitanum og bæta smjörinu á pönnuna.
  3. Blandið saman sykurbráð og smjöri og bætið næst kartöflunum saman við og leyfið að malla við lágan til miðlungs hita í nokkrar mínútur.

Waldorf salat

  • 2 gul epli
  • 10-15 vínber
  • 2 ananashringir (niðursoðnir)
  • 1 lítil dós sýrður rjómi
  • 150 ml þeyttur rjómi
  • 1 msk. sykur
  • 1 msk. saxað suðusúkkulaði
  • 40 g saxaðar pekanhnetur
  1. Flysjið eplin og skerið smátt niður í teninga.
  2. Skerið vínberin niður og saxið ananashringina mjög smátt.
  3. Blandið sýrðum rjóma saman við ávextina ásamt sykri, súkkulaði og pekanhnetum.
  4. Að lokum fer þeyttur rjómi saman við með sleikju og blandað varlega saman.
  5. Sett í skál og skreytt með söxuðu súkkulaði og pekanhnetum.

Annað meðlæti

  • Grænar baunir
  • Rauðkál
hátíðarmatur

Sósan skiptir að mínu mati mestu máli þegar kemur að meðlætinu! Hún þarf að vera bragðmikil og þétt í sér og það hefst með því að dúllast aðeins við hana. Ef þið viljið síður reykta bragðið sem kemur úr soðinu megið þið að sjálfsögðu nota vatn í staðinn og auka á kraftinn í staðinn. Ég nota mjög oft nautakraft líka þegar ég geri sósur með lambi, svíni eða öðru svo það er um að gera að blanda saman lamba- og nautakrafti og krydda eftir smekk.

rauðvíns- sveppasósa

Sykurbrúnaðar kartöflur, grænar baunir og rauðkál eru síðan algjör klassík.

sykurbrúnaðar kartöflur

Þetta Waldorf salat er síðan mitt uppáhalds!

waldorf salat

Gott rauðvín með steikinni er síðan ómissandi!

lambakjöt og rauðvín

Þessi færsla er unnin í samstarfi við Gerum daginn girnilegan!

Deila uppskriftinni

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Flokkar

0
0
Karfan þín
Karfan er tómNetverslun