Tartalettur með hamborgarhrygg



⌑ Samstarf ⌑
Tartalettur uppskrift

Hér koma undursamlegar tartalettur sem eru fullkomnar þegar þið eigið afgang af hamborgarhrygg eftir hátíðirnar! Ef þið eigið ekki kjöt er hægt að kaupa sneiðar og nota þær í þennan rétt!

Namm!

hvað á að gera við afgang af hamborgarhrygg

Tartalettur með hamborgarhrygg

20 stykki

  • 20 x tartalettur
  • 1 lítill haus brokkoli
  • 150 g sveppir
  • ½ blaðlaukur
  • 400 g hamborgarhryggur
  • 1 piparostur
  • 250 ml rjómi
  • 4 msk. Heinz majónes
  • Maizena mjöl
  • Rifinn ostur
  • Salt og pipar
  • Smjör til steikingar
  1. Skerið grænmetið smátt niður og hitið ofninn í 180°C.
  2. Steikið brokkoli upp úr vel af smjöri ásamt sveppum og blaðlauk.
  3. Kryddið með salti og pipar eftir smekk og þegar grænmetið mýkist má hella rjóma og majónesi á pönnuna ásamt rifnum piparosti.
  4. Blandið öllu saman og þykkið blönduna aðeins með Maizena mjöli.
  5. Skiptið niður í tartaletturnar, toppið með rifnum osti og bakið í um 15 mínútur í ofninum.
Heitur réttur

Njótið!

tartalettur með hamborgarhrygg

Þessi færsla er unnin í samstarfi við Gerum daginn girnilegan!

Deila uppskriftinni

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Flokkar

0
0
Karfan þín
Karfan er tómNetverslun