Brie salathringur með baguette



⌑ Samstarf ⌑
smáréttir hugmyndir

Hér kemur fullkominn forréttur eða smáréttur fyrir áramótin! Það er hátíðlegt að raða þessu svona upp og síðan getur hver og einn skammtað sér að vild á sína brauðsneið.

Namm, einum of gott!

forréttur hugmyndir

Brie salathringur með baguette

  • 1 x baguette brauð
  • 100 g pekanhnetur
  • 3 msk. sykur
  • Veislu salat og klettasalat
  • Spírur
  • ½ granatepli
  • 100 g hindber
  • 1 x mandarína
  • 2 x brie ostur að eigin vali
  • Sinnepsgljái (sjá uppskrift að neðan)
  • Balsamik gljái
  1. Sneiðið brauðið niður og ristið.
  2. Bræðið sykur á pönnu og hrærið pekanhnetunum saman við þar til þær hjúpast. Leggið á bökunarpappír og leyfið að kólna, skerið síðan niður til að strá yfir salatið.
  3. Setjið litla skál í miðjuna á um 30 cm disk/fati og raðið í kringum hana báðum tegundum af salti, spírum, granatepli, hindberjum og mandarínusneiðum.
  4. Skerið brie ostinn niður í munnstóra bita og dreifið yfir salatið.
  5. Fjarlægið skálina og toppið með sinnepsgljáa, balsamik gljáa og sykruðum hnetum.
  6. Njótið með baguette brauði.

Sinnepsgljái uppskrift

  • 3 msk. ólífuolía
  • 1 msk. Dijon Honey Mustard sinnep
  • 2 msk. hunang
  • 1 msk. balsamik edik
  1. Pískið allt saman og setjið yfir salatið.
áramót forréttur

Þetta sinnep passar mjög vel í svona dressingar!

Salat með brie osti
Deila uppskriftinni

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Flokkar

0
0
Karfan þín
Karfan er tómNetverslun