Allt er vænt sem vel er grænt! Ég elska góða skyrdrykki og þennan prófaði ég fyrst fyrir löngu síðan og hef gert ýmsar útfærslur af honum hingað til. Þessi er saðsamur og fullur af orku og ég mæli með að þið prófið!

Fallegur og góður!

Spínatboost
Uppskrift dugar í um 2 glös
- 300 g Ísey vanilluskyr
- 3 lúkur spínat
- 250 ml vanillublanda (eða léttmjólk)
- 1 banani
- 6-8 döðlur
- 2 msk. hnetusmjör
- Klakar
- 1-2 tsk. spirulinaduft + í hliðarnar
- Setjið allt saman í blandarann og blandið vel.
- Gaman er að skreyta glasið að innan með smá skyri og spirulinadufti áður en drykknum er hellt í glas.
- Njótið á meðan drykkurinn er kaldur.

Ég nota vanilluskyr í ansi marga boost drykki á okkar heimili!



























