Ef þig langar í djúsí og góða súkkulaðiköku er þessi skemmtileg tilbreyting frá þeim klassísku. Virkilega mjúk og góð!
Mmmm….

Súkkulaði formkaka
Súkkulaðikaka uppskrift
- 240 g hveiti
- 350 g sykur
- 80 g bökunarkakó
- 2 tsk. matarsódi
- 1 tsk. lyftiduft
- 1 tsk. salt
- 250 ml karamellu súrmjólk
- 250 ml heitt vatn
- 120 ml ljós matarolía
- 3 egg
- 2 tsk. vanilludropar
- 70 g Síríus súkkulaðidropar
- Matarolíusprey
- Hitið ofninn í 160°C.
- Blandið þurrefnunum saman í hrærivélarskálinni.
- Pískið súrmjólk, vatn, olíu, egg og vanilludropa saman í skál og blandið saman við þurrefnin, hrærið á lágum hraða allan tímann, skafið niður á milli.
- Að lokum má vefja súkkulaðidropana saman við með sleikju.
- Spreyið vel af matarolíuspreyi innan á hringlaga formkökuform og sigtið síðan bökunarkakó yfir eins og unnt er. Þetta er gert til þess að kakan loði síður við formið þegar þið hvolfið henni úr.
- Bakið í 40-45 mínútur eða þar til prjónn kemur út með smá kökumylsnu á en ekki blautu deigi.
- Kælið hana alveg í forminu áður en þið hvolfið og setjið hjúpinn yfir.
Súkkulaðihjúpur og skreyting
- 100 g Síríus suðusúkkulaði
- 60 ml rjómi
- Síríus karamellukurl
- Saxið súkkulaðið smátt og hitið rjómann að suðu.
- Hellið rjómanum yfir og pískið saman við súkkulaðið þar til það er bráðið. Ef það eru einhverjir súkkulaðikekkir enn má setja í örbylgjuofn í 20 sekúndur og píska áfram.
- Smyrjið yfir kökuna og stráið síðan karamellukurli yfir.

Suðusúkkulaði gerir auðvitað allt betra!

Sá svipaða hugmynd af köku hjá Courtney sem er einn af mínum uppáhalds kökubloggurum sem ég útfærði eftir mínu höfði og útkoman var dásamleg.


































