„Mac&Cheese“ lasagna



⌑ Samstarf ⌑
Mac & Cheese uppskrift

Yngsta dóttir mín elskar Mac&Cheese. Við höfum prófað þónokkrar útfærslur af slíkum rétti en best þykir henni einföld ostasósa líkt og hér. Við sáum svipaða hugmynd á Instagram um daginn og hún hætti ekki að tala um þetta fyrr en hún og vinkona hennar fengu að þróa þessa uppskrift með mér.

Hér í þessu myndbandi höfum við því sérlega góða 8 ára aðstoðarkokka sem stóðu sig með prýði við eldamennskuna!

lasagna uppskrift

Mac&Cheese lasagna

Hakkfylling

  • 600 g nautahakk
  • 1 laukur
  • 1 krukka Heinz pastasósa með basil
  • 3 msk. Hunt‘s tómatpaste
  • 100 ml vatn
  • 1 msk. oregano krydd
  • Salt og pipar eftir smekk
  • Ólífuolía til steikingar
  1. Saxið laukinn smátt og steikið stutta stund við meðalhita upp úr olíu, saltið og piprið.
  2. Bætið hakkinu á pönnuna, hækkið hitann og steikið í gegn.
  3. Bætið tómatpaste og pastasósu saman við ásamt vatni, hrærið vel og leyfið aðeins að malla.
  4. Kryddið eftir smekk.

Makkarónu-ostafylling og samsetning

  • 350 g macaroni pasta
  • 90 g smjör
  • 3 msk. hveiti
  • 500 ml nýmjólk
  • 200 ml rjómi
  • 250 g cheddar ostur
  • 250 g mozzarella ostur
  • 80 g Parmareggio Reggiano ostur
  • 1 msk. Oscar nautakraftur fljótandi
  • Salt og pipar eftir smekk
  • Ostur til að rífa yfir réttinn
  1. Hitið ofninn í 180°C.
  2. Sjóðið makkarónupastað.
  3. Bræðið smjörið við meðalhita og hrærið hveitið síðan saman við þar til kekkjalaust.
  4. Hellið þá mjólk og rjóma saman við og blandið vel saman, hækkið aðeins hitann.
  5. Rífið allar tegundir af osti og blandið saman við.
  6. Bragðbætið með nautakrafti, salti og pipar.
  7. Hellið pastanu saman við ostablönduna.
  8. Hellið makkarónufyllingunni í botninn á eldföstu formi og dreifið næst úr hakkblöndunni.
  9. Stráið rifnum osti yfir allt og setjið í ofninn í 15 mínútur.
  10. Gott er að bera réttinn fram með fersku salati og góðu brauði.
einfalt lasagna

Góð pastasósa í bland við ostasósuna, namm!

makkarónur og ostur uppskrift

Þessi færsla er unnin í samstarfi við Gerum daginn girnilegan!

Deila uppskriftinni

2 Replies to “„Mac&Cheese“ lasagna”

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Flokkar

0
0
Karfan þín
Karfan er tómNetverslun