Hér hafið þið mánudagsfisk af betri gerðinni! Ég er að reyna að elda oftar fisk og langar að setja hingað inn fleiri slíkar uppskriftir fyrir ykkur á næstunni. Við skulum byrja á þessari hér og almáttugur hún er æðisleg! Brakandi ferskt salat og lax með asísku ívafi, namm!
Mmm….

Lax með asísku salati
Fyrir 4-5 manns
Asískt salat uppskrift
- 200 g gulrætur (rifnar)
- 200 g rauðkál (skorið smátt)
- 100 g kínakál (skorið smátt)
- 250 g edamame baunir
- 400 g Udon núðlur frá Miyamoto (eldaðar)
- 60 g salthnetur (saxaðar)
- 2 msk. kóríander (saxað)
- Hnetu og soya dressing (sjá uppskrift að neðan)
- Blandið öllu saman í skál og njótið með grilluðum laxi.
Hnetu og soya dressing
- 60 g hnetusmjör (smooth)
- 3 msk. sætt hrísgrjónaedik
- 6 msk. soyasósa
- 4 msk. hlynsýróp
- 1 tsk. ristuð sesamolía
- Pískið öll hráefni saman og hellið yfir grænmetið, blandið saman.
Lax eldun
- 5 laxasteikur frá Sjávarbúrinu
- Garlic – teriyaki sósa frá Stonewall Kitchen (1/2 flaska)
- Hitið ofninn á grillstillingu í 200°C.
- Raðið laxasteikunum í eldfast mót/ofnskúffu.
- Setjið vel af garlic-teriyaki sósu á hvern bita.
- Eldið í 10-15 (eftir stærð bitanna).

Í Hagkaup er mikið úrval af fiski og fiskréttum frá Sjávarbúrinu sem ég verð að fá að mæla með!

Núðlusalatið er svo geggjað með þessu!


































