Það er sannarlega hægt að gera hollari útgáfu af súkkulaðimús og þessa hér mætti hreinlega borða í morgunmat!
Auðveld, holl og góð!

Holl súkkulaðimús
2-4 glös/krúsir (eftir stærð)
- 300 g kotasæla
- 70 g Valor sykurlaust dökkt súkkulaði
- 1 msk. bökunarkakó
- 1 tsk. vanillusykur
- Bræðið súkkulaðið í örbylgjuofni og leyfið hitanum aðeins að rjúka úr.
- Setjið öll hráefni í blandara og blandið vel, skafið niður á milli.
- Skiptið niður í glös/krúsir og setjið í kæli í 20-30 mínútur.
- Toppið með uppáhalds berjunum ykkar og smá söxuðu súkkulaði. Einnig er gott að setja smá rjóma eða vanillu gríska jógúrt á undan jarðarberjunum.

Valor súkkulaðið er sykurlaust og því tilvalinn kostur fyrir hollari uppskriftir.



































