Hér kemur fiskréttur frá mömmu sem ég var búin að gleyma! Ég var hjá þeim um daginn þegar þau voru að fara að elda þennan rétt og bað mömmu að segja mér hvað hún setti í hann og hér er útkoman fyrir ykkur!
Fljótlegur, einfaldur og góður!

Þorskur í hollandaise sósu
Fyrir 4-5 manns
- 800-900 g þorsksteikur frá Sjávarbúrinu
- ½ blómklálshaus
- ½ brokkolihaus
- ½ blaðlaukur
- ½ sítróna (safinn)
- Salt og pipar
- 2 x TORO Hollandaise sósa
- 150 g smjör
- 400 ml vatn
- 100 ml nýmjólk
- Olía til steikingar
- Hitið ofninn í 180°C.
- Steikið brokkoli, blómkál og blaðlauk upp úr olíu á pönnu, saltið og piprið eftir smekk. Steikið þar til grænmetið mýkist aðeins og leggið þá til hliðar.
- Skolið og þerrið þorsksteikurnar, raðið þeim í eldfast mót.
- Kreistið sítrónusafa yfir fiskinn og saltið og piprið.
- Dreifið næst úr steikta grænmetinu yfir fiskinn
- Útbúið hollandaise sósuna með því að bræða smjör og hræra sósuduftinu úr báðum pökkum saman við. Hellið næst vatni og mjólk saman við, hitið að suðu og lækkið þá niður hitann. Leyfið að malla í nokkrar mínútur við lágan hita þar til sósan þykknar örlítið.
- Hellið sósunni yfir fiskinn og setjið hann í ofninn í um 30 mínútur.
- Gott er að bera fiskréttinn fram með hrísgrjónum og rúgbrauði.

Þorsksteikurnar frá Sjávarbúrinu henta í ýmsa fiskrétti!

Allt hráefni í þessa uppskrift fæst í Hagkaup!


































