Stökkt taco í ofni



⌑ Samstarf ⌑
taco tuesday uppskrift

Það er „Taco Tuesday“ í dag og því tilvalið að koma með nýja taco uppskrift hingað inn! Miðjan mín útbjó svipað um daginn eftir að hafa séð á TikTok svo ég ákvað að gera mína útfærslu af slíku og deila með ykkur. Þetta er svo einfalt og sniðugt! Öll fjölskyldan elskaði þetta og ég mæli með að þið prófið.

Namm!

hvað á að vera í matinn?

Stökkt taco í ofni

Fyrir um 4 manns

  • 16 litlar hveiti tortilla kökur
  • 500 g nautahakk
  • 1 poki taco kryddblanda
  • ½-1 dós Philadelphia rjómaostur
  • Rifinn ostur
  • Guacamole (sjá uppskrift að neðan)
  • Salsasósa
  • Maarud Chili Cheese Tortilla Chips
  • Ólífuolía
  1. Hitið ofninn í 190°C.
  2. Steikið hakkið upp úr olíu og kryddið með taco kryddi, geymið.
  3. Smyrjið vel af rjómaosti yfir hverja tortilla köku.
  4. Setjið næst hakk og vel af rifnum osti inn í hverja köku og klemmið saman, raðið í eldfast mót/ofnskúffu.
  5. Penslið með ólífuolíu og bakið í um 15 mínútur eða þar til kantarnir á tortilla kökunum byrja aðeins að gyllast og osturinn er bráðinn.
  6. Njótið með guacamole, salsasósu og tortilla flögum.

Guacamole uppskrift

  • 3-4 þroskuð avókadó
  • 1 msk. Philadelphia rjómaostur
  • 180 g piccolo tómatar
  • ½ rauðlaukur
  • ½ lime (safinn)
  • 2 msk kóríander
  • Salt og pipar
  1. Stappið avókadó, skerið tómata niður og saxið rauðlauk og kóríander.
  2. Kreistið lime safa yfir stappað avókadó og blandi rjómaostinum saman við.
  3. Bætið næst tómötum, rauðlauk og kóríander útí og blandið saman, kryddið eftir smekk.
kvöldmatur hugmyndir

Það gerir þetta extra djúsí að smyrja vel af rjómaosti inn í tortilla kökurnar áður en þið setjið hakkið og ostinn.

Einfaldir réttir

Hvað er síðan betra en ferskt guacamole og tortilla flögur!

taco í ofni

Þessi færsla er unnin í samstarfi við Gerum daginn girnilegan!

Deila uppskriftinni

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Flokkar

0
0
Karfan þín
Karfan er tómNetverslun