Jólakakan hennar ömmu



⌑ Samstarf ⌑
sandkaka uppskrift

Það eru enn svo margar uppskriftir sem ég hef ekki prófað að gera upp úr gömlu uppskriftarbókinni hennar ömmu Guðrúnar, sem er eflaust yfir 50 ára gömul stílabók með handskrifuðum uppskriftum. Jólakakan er búin að vera lengi á listanum og almáttugur hún heppnaðist svo vel að ég sá strax eftir því að hafa ekki gert tvöfalda uppskrift eins og amma gerði alltaf og stendur í bókinni!

Nostalgían uppmáluð og almáttugur svo mjúk og góð!

ömmuuppskriftir

Undursamleg!

jólakaka uppskrift

Jólakakan hennar ömmu

  • 175 g sykur
  • 125 g smjörlíki (við stofuhita)
  • 1 egg
  • 250 g Til hamingju hveiti (rautt)
  • 1 tsk. kartöflumjöl
  • 1 tsk. lyftiduft
  • 1 tsk. kardimommudropar
  • 130 ml nýmjólk
  • 40 g Til hamingju rúsínur
  1. Hitið ofninn í 160°C.
  2. Þeytið saman sykur og smjörlíki þar til létt og ljóst.
  3. Bætið egginu saman við og þeytið áfram, skafið niður á milli.
  4. Næst fara þurrefnin saman við ásamt mjólk og kardimommudropum.
  5. Hrærið þar til slétt og fallegt deig hefur myndast. Deigið er þykkt og þannig á það að vera.
  6. Vefjið svo rúsínunum saman við í lokin með sleikju eða á lægsta hraða í hrærivélinni.
  7. Setjið í vel smurt formkökuform og bakið í 50-55 mínútur.
jólakaka uppskrift

Baksturinn er sannarlega orðinn betri með þessu brosmilda hveiti!

Sandkakan hennar ömmu

Þessa verðið þið að prófa!

sandkaka með rúsínum
Deila uppskriftinni

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Flokkar

0
0
Karfan þín
Karfan er tómNetverslun