Hér kemur eitt dúndurgott salat fyrir helgina!
Namm!

„Spicy“ túnfisksalat
- 1 dós ORA túnfiskur í vatni
- 4 egg (harðsoðin)
- ½ rauðlaukur (saxaður)
- ½ rauð paprika (söxuð)
- 1 msk. niðursoðið jalapeno (saxað)
- 1 msk. Sambal olelek
- 1 msk. hunangssinnep
- 100 g majónes
- 50 g sýrður rjómi
- Salt og pipar
- Pískið saman majónes og sýrðan rjóma.
- Blandið næst öllum öðrum hráefnum saman við og blandið varlega saman með sleikju.
- Kryddið eftir smekk og geymið í kæli fram að notkun.
- Berið fram með Finn Crisp snakki að eigin vali.

Nokkrum númerum of gott!

Þið verðið að prófa!



































