Það er kominn föstudagur enn eina ferðina og hér er virkilega djúsí og gott helgarpasta sem hægt er að dekra sig með!
Namm!

Steikarpasta með sveppum
Fyrir 5-6 manns
- 500 g DeCecco Mezzi Rigatoni pasta
- 400 g nautakjöt (file eða annað slíkt)
- ½ laukur (saxaður)
- 2 hvítlauksrif (rifin)
- 300 g kastaníusveppir (niðurskornir)
- 100 ml Muga rauðvín
- 100 ml vatn
- 450 ml rjómi
- 3 msk. Philadelphia rjómaostur
- 2 msk. Oscar fljótandi nautakraftur
- 1 msk. hunangsinnep
- 1 msk. timian
- 2-3 msk. maizenamjöl
- Smjör til steikingar
- Filippo Berio ólífuolía til steikingar
- Salt og pipar
- Skerið kjötið niður í litla bita, steikið upp úr smjöri og kryddið með salti og pipar, færið yfir á disk þegar tilbúið.
- Bætið smjöri á pönnuna og steikið lauk, sveppi og síðan hvítlauk þar til grænmetið mýkist.
- Hækkið hitann í lokin og hellið rauðvíninu saman við, leyfið því að gufa upp.
- Bætið þá vatni, rjóma, rjómaosti, nautakrafti og sinnepi saman við og hrærið þar til falleg sósa hefur myndast.
- Kryddið með timian, salti og pipar og þykkið með maizena.
- Gott er að bera pastað fram með hvítlauksbrauði eða baguette.

DeCecco Rigatoni pastað er fullkomið í þennan rétt.

Mmm…

Steikarpasta og rauðvín er fullkomin tvenna.

Þessi færsla er unnin í samstarfi við Gerum daginn girnilegan!


































