Sælgætistertubollur



⌑ Samstarf ⌑
bolludagurinn

Þegar ein af uppáhalds kökunum þínum breytist í bollu! Útkoman er ekkert annað en stórkostleg!

Slurp!

bolludagsbollur uppskrift

Sælgætistertubollur

Um 20 stk

Margengsmiðja

  • 4 eggjahvítur
  • 190 g sykur
  1. Hitið ofninn í 110°C.
  2. Stífþeytið eggjahvítur og sykur og sprautið í litla hringi á bökunarpappír. Best er að gera hringina svipað stóra og bollurnar og hafa í huga að hvorutveggja stækkar aðeins við bakstur.
  3. Bakið í 50 mínútur og leyfið síðan að kólna.

Vatnsdeigsbollur uppskrift

  • 180 g smjör
  • 360 ml vatn
  • 200 g hveiti
  • 1 tsk. lyftiduft
  • ¼ tsk. salt
  • 3 egg (160 g)
  1. Hitið ofninn í 180°C.
  2. Blandið hveiti, lyftidufti og salti saman í skál og leggið til hliðar.
  3. Pískið eggin í skál, vigtið og geymið. Ef eggin eru lítil gæti þurft aðeins meira en 3 egg.
  4. Hitið vatn og smjör saman í potti þar til smjörið bráðnar og leyfið aðeins að sjóða, slökkvið þá á hellunni.
  5. Setjið þurrefnin saman við og hrærið vel þar til „smjörbolla“ myndast.
  6. Færið þá deigið yfir í hrærivélarskálina og hrærið rólega með K-inu þar til mesti hitinn er farinn út því.
  7. Bætið eggjunum saman við í nokkrum skömmtum og hrærið áfram saman.
  8. Setjið þá kúfaða matskeið á bökunarpappír fyrir hverja bollu (ég nota litla ísskeið) og bakið í 30-35 mínútur eða þar til bollurnar verða vel gylltar. Alls ekki opna ofninn til að kíkja á þær/botninn fyrr en í fyrsta lagi eftir 25 mínútur því þá eru meiri líkur á því að þær falli.
  9. Leyfið bollunum að kólna, skerið þær í sundur og fyllið.

Fylling og samsetning

  • 4 eggjarauður
  • 50 g flórsykur
  • 100 g brætt Síríus suðusúkkulaði + 80 g til skrauts
  • 750 ml þeyttur rjómi (skipt niður)
  1. Þeytið saman eggjarauður og flórsykur þar til létt og ljóst.
  2. Bætið þá 100 g af bræddu suðusúkkulaði saman við og vefjið saman með sleikju.  
  3. Blandið næst um 350 ml af þeytta rjómanum saman við með sleikju og setjið í sprautupoka með stórum hringlaga stút.
  4. Restin af þeytta rjómanum fer síðan í annan eins sprautupoka (líka hægt að notast við skeið).
  5. Raðið bollunum saman: Botn, rjómi, súkkulaðikrem, marengs, rjómi, súkkulaðikrem, toppur og svo skreytt með smá bræddu súkkulaði.
  6. Best er að geyma bollurnar í kæli í að minnsta kosti 3-4 klukkustundir áður en þeirra er notið til að marengsinn sé búinn að mýkjast aðeins upp.
hvernig á að baka vatnsdeigsbollur

Suðusúkkulaðið spilar lykilhlutverk í súkkulaðikreminu sem er toppurinn við þessa bollu!

vatnsdeigsbollur uppskrift
Deila uppskriftinni

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Flokkar

0
0
Karfan þín
Karfan er tómNetverslun