Vatnsdeigsbollur með sælgætisfyllingu



⌑ Samstarf ⌑
vatnsdeigsbollur uppskrift

Ef þig vantar hina fullkomnu vatnsdeigsbollu uppskrift þá þarft þú ekki að leita lengra! Þetta er sú uppskrift sem ég nota alltaf í grunninn og síðan má leika sér með fyllingar og annað. Hér sprautaði ég bollunum til dæmis í hring til að útbúa „bolluköku“ og það er gaman að bera þær fram þannig.

Þessar eru algjör sælgætisbomba og svo góðar!

Einfaldar vatnsdeigsbollur

Vatnsdeigsbollur með sælgætisfyllingu

Vatnsdeigsbollur uppskrift

  • 180 g smjör
  • 360 ml vatn
  • 200 g hveiti
  • 1 tsk. lyftiduft
  • ¼ tsk. salt
  • 3-4 egg (160 g)
  1. Hitið ofninn í 180°C.
  2. Blandið hveiti, lyftidufti og salti saman í skál og leggið til hliðar.
  3. Pískið eggin í skál, vigtið og geymið. Ef eggin eru lítil gæti þurft aðeins meira en 3 egg.
  4. Hitið vatn og smjör saman í potti þar til smjörið bráðnar og leyfið aðeins að sjóða, slökkvið þá á hellunni.
  5. Setjið þurrefnin saman við og hrærið vel þar til „smjörbolla“ myndast.
  6. Færið þá deigið yfir í hrærivélarskálina og hrærið rólega með K-inu þar til mesti hitinn er farinn út því.
  7. Bætið eggjunum saman við í nokkrum skömmtum og hrærið áfram saman.
  8. Setjið deigið í sprautupoka með stórum stjörnustút (t.d 1M), teiknið hring á bökunarplötu (um 20-25 cm) og sprautið bollur með jöfnu millibili á hringinn (12 bollur). Sprautið stakar bollur á aðra bökunarplötu úr restinni (um 8 stykki).
  9. Bakið í 32-35 mínútur eða þar til bollurnar verða vel gylltar. Alls ekki opna ofninn til að kíkja á þær/botninn fyrr en í fyrsta lagi eftir 25 mínútur því þá eru meiri líkur á því að þær falli.
  10. Leyfið bollunum að kólna, skerið þær í sundur og fyllið.

Fylling í bollur

  • 100 g Nóa Töggur
  • 50 ml rjómi
  • 400 ml þeyttur rjómi
  • 200 g jarðarber
  • 200 g Nóakropp (+ meira til að skreyta með)
  1. Bræðið Töggur og 50 ml af rjóma saman í potti þar til karamellusósa myndast.
  2. Setjið karamellusósu í botninn á hverri bollu og leyfið karamellunni að kólna áður en þið setjið rjómann yfir.
  3. Maukið jarðarberin og blandið þeim ásamt Nóakroppi saman við þeytta rjómann, setjið vel af rjóma á hverja bollu og setjið toppinn síðan yfir.
  4. Útbúið glassúr og skreytið.

Glassúr uppskrift

  • 100 g brætt smjör
  • 210 g flórsykur
  • 3 msk. bökunarkakó
  • 3 msk. uppáhellt kaffi
  • 2 tsk. vanilludropar
  1. Pískið allt saman og setjið um eina teskeið yfir hverja bollu.
  2. Skreytið með Nóakroppi.
Vatnsdeigsbollur með sælgætisfyllingu

Nóakropp gerir lífið einfaldlega betra!

vatnsdeigsbollur sem aldrei klikka

Ó svo góðar!

vatnsdeigsbollur

Þessi glassúr er síðan sá allra besti!

bollur uppskrift

Það er gaman að bera bollurnar fram eins og köku.

Deila uppskriftinni

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Flokkar

0
0
Karfan þín
Karfan er tómNetverslun