Pastasalöt eru alltaf klassík og algjör snilld því þau er hægt að útbúa aðeins fyrirfram. Hvort sem þau eru ætluð fyrir hádegismat, kvöldmat eða veislu þá slá þau alltaf í gegn! Hér kemur dásamleg útfærsla með stökkri hráskinku og pestó sem þið verðið að prófa!
Namm!

Pastasalat með pestódressingu
- 500 g DeCecco Fusilli pasta
- 150 g Filippo Berio basil pestó
- 50 g Heinz majónes
- 100 g sýrður rjómi
- 50 ml pastavatn
- ½ sítróna safinn
- 10 hráskinkusneiðar
- 180 g piccolo tómatar
- 60 g klettasalat
- ½ rauðlaukur
- 180 g mozzarella perlur
- Parmesan ostur
- Spírur
- Salt og pipar eftir smekk
- Sjóðið pasta í söltu vatni og kælið næst alveg, geymið 50 ml af pastavatni fyrir dressinguna.
- Bakið hráskinkuna í ofni við 180°C í 10-15 mínútur eða þar til hún verður stökk, kælið og myljið/skerið síðan niður.
- Pískið saman pestó, majónes, sýrðan rjóma, pastavatn og sítrónusafa.
- Blandið pestódressingunni saman við pastað, saltið og piprið eftir smekk.
- Skerið tómata niður og saxið rauðlauk, setjið saman við ásamt hráskinkunni, mozzarellaperlunum og klettasalatinu, blandið létt saman.
- Toppið með smá parmesan osti og spírum.

Pestó – tómatar – mozzarella – hráskinka…..í bland við pasta, það er negla!

Þessi færsla er unnin í samstarfi við Gerum daginn girnilegan!


































