Garðurinn mathöll – Smáralind



⌑ Samstarf ⌑

Það hefur líklega ekki farið framhjá neinum að ný mathöll opnaði í Smáralind fyrr í vetur! Þetta er mathöllin sem ég áttaði mig ekki á að vantaði fyrr en hún var komin. Ferðirnar í Smáralindina eru nú miklu skemmtilegri og gaman að geta byrjað eða endað verslunarferðina eða bíóferðina í Smárabíó á þessum dásamlega stað. Það eru ýmiss konar veitingastaðir í Garðinum og það er einmitt það sem er svo frábært. Mömmu og pabba langar kannski í sushi á meðan krakkarnir vilja Subway og nú er slíkt ekki lengur vandamál. Allir geta fengið það sem þeir vilja og setið saman í fallegu umhverfi.

Ég er búin að fara nokkrar ferðir í Garðinn síðustu mánuði og hef prófað allt frá skyndibitastöðunum sem eru fremst yfir í fínni veitingastaðina sem eru staðsettir innar. Það hefur aðeins farið eftir því hversu mikinn tíma ég hef haft og hver er með mér hvað hefur orðið fyrir valinu hverju sinni. Nú langar mig að fá að deila minni upplifun á þessum stað með ykkur hér í þessari færslu!

Garðurinn er opinn lengur en hefðbundinn opnunartími er í Smáralind sem er frábært ef maður vill enda verslunardaginn á góðum mat eða skella sér í bíó í endurbættu Smárabíói eða upplifa aðra afþreyingu á svæðinu í kringum matartíma.
Opnunartímar Garðsins!

Garðurinn er extra kósý mathöll að mínu mati. Þar er falleg lýsing og þig hreinlega langar til þess að setjast niður og eiga huggulega stund, sama hvað þú ert að fá þér. Það er mikið lagt upp úr hljóð- og loftgæðum og maður finnur sannarlega fyrir þessari vönduðu hönnun þegar sest er niður. Ég hef líklega prófað að sitja á öllum svæðum og alls staðar hefur mér liðið vel og fengið góðan mat. Ég ætla að fá að fjalla aðeins um þá staði sem ég hef náð að heimsækja en enn á ég þó eftir að prófa helling!

Funky Bhangra

Funky Bhangra býður upp á indverska rétti ásamt alls kyns litríkum og fallegum réttum! Það er veisla fyrir bragðlaukana að smakka þennan matseðil! Ég elska alla smáréttina þeirra líkt og naan, pappadums og hot wings og síðan er kjúklingagrillspjótið í uppáhaldi.

Skammtarnir eru litríkir og fallegir og stundum fáum við okkur einn aðalrétt og nokkra smárétti og deilum, það er nefnilega svo gaman að geta smakkað alls konar!

Hjá Höllu

Hjá Höllu hefur lengi verið í uppáhaldi hjá mér, allt frá því þessi staður var í Grindavík. Ég elska að hann sé mættur í Smáralind og hér fáið þið hollan og góðan heimilismat úr ýmsum áttum. Það er líka mikið úrval af „take-away“ hjá þeim og sniðugt að geta gripið með sér hollustu ef maður er á hraðferð.

Djúsí Sushi

Á þessum stað fáið þið eitt besta sushi landsins! Síðan eru þau með alls kyns smárétti og fleira á matseðli og allt er þetta guðdómlega gott!

Djúpsteikti humarinn er í uppáhaldi hjá mér og hér líkt og annars staðar er ég oft að vinna með að panta nokkra smárétti og færri aðalrétti til að deila með þeim sem eru með mér á borði, það er bara miklu skemmtilegra, haha!

Nokkrir fleiri veitingastaðir í Garðinum

Dætur mínar ELSKA brauðstangirnar á Sbarro og ég verð nú reyndar að vera sammála þeim að þetta eru líklega bestu brauðstangir í heimi!

Ég elska Yuzu-burger og franskarnar hjá þeim eru eitthvað annað góðar!

Serrano er einnig í miklu uppáhaldi á mínu heimili og NEÓ pizza líka.

Það er síðan fullkomið að enda góða máltíð á því að kíkja á Gaeta Gelato en þar er undursamlegur gelató eins og á Ítalíu!

Ég mun halda ótrauð áfram að heimsækja og prófa fleiri veitingastaði í Garðinum og vona innilega að þið gerið það líka! Í Garðinum eru síðan reglulega skemmtilegir viðburðir og ég mæli sannarlega með að þið fylgist með þeim og gerið ykkur dagamun þegar slíkir eru haldnir!

Einnig er hægt að bóka hóparými í Garðinum sem gæti verið skemmtileg tilbreyting bæði fyrir vinnustaði og vinahópa!

Deila uppskriftinni

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Flokkar

0
0
Karfan þín
Karfan er tómNetverslun