Grænmetis ídýfa



⌑ Samstarf ⌑
einföld ídýfa

Það er alltaf gaman að prófa nýjar ídýfur og ekki skemmir fyrir ef þær eru einfaldar og ljúffengar eins og þessi hér!

Góð tilbreyting frá klassískri ídýfu og þetta litla TUC kex er æði!

ídýfa

Grænmetis ídýfa

  • 200 g Philadelphia rjómaostur með graslauk & hvítlauk
  • 150 g sýrður rjómi
  • 1 meðalstór gulrót (rifin smátt)
  • ½ rauðlaukur (saxaður smátt)
  • ½ rauð paprika (söxuð smátt)
  • Mini TUC kex
  • Vorlaukur til skrauts
  1. Þeytið saman rjómaost og sýrðan rjóma í hrærivél þar til slétt og fín áferð hefur myndast.
  2. Bætið rifinni gulrót ásamt söxuðum rauðlauk og papriku saman við og blandið varlega saman við með sleikju, toppið með smá vorlauk.
  3. Gott er að kæla ídýfuna í um klukkustund áður en hennar er notið með mini TUC kexi.
smáréttir

Þetta litla kex passar fullkomlega með ídýfunni!

góð ídýfa

Ekki skemmir að hafa smá hvítvín með þessu.

ídýfa með rjómaosti

Þessi færsla er unnin í samstarfi við Gerum daginn girnilegan!

Deila uppskriftinni

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Flokkar

0
0
Karfan þín
Karfan er tómNetverslun