Risarækju taco



⌑ Samstarf ⌑
taco tuesday

Ef þig langar að taka taco kvöldið upp á næsta stig þá er þessi hér útfærsla algjör lúxus!

Svo ferskt og gott!

risarækju taco

Risarækju taco

Fyrir um 4 manns (12 stykki)

Risarækjur eldun

  • 800 g risarækjur
  • 3 hvítlauksrif
  • 2 chilli
  • 2 msk. kóríander
  • 50 g smjör
  • ½  flaska Pineapple Ginger Sauce frá Stonewall Kitchen
  • Hvítlaukssalt + sítrónupipar
  1. Affrystið, skolið og þerrið rækjurnar vel.
  2. Saxið hvítlauk, chilli og kóríander og steikið ásamt rækjunum upp úr bræddu smjörinu, kryddið eftir smekk.
  3. Steikið þar til rækjurnar verða bleikar að utan og bætið þá Pinapple Ginger sósunni á pönnuna og leyfið rækjunum að malla örfáar mínútur í sósunni.
  4. Raðið næst taco-inu saman.

Annað hráefni og samsetning

  • 12 x mini tortilla vefjur
  • Rósakál (1 haus)
  • Rauðlaukur (1 stk)
  • Avókadó (3 stór)
  • Mango Lime Salsa frá Stonewall Kitchen
  • Habanero Mango Aioli frá Stonewall Kitchen
  • Kóríander til að setja yfir
  1. Hitið vefjurnar og skerið grænmetið niður á meðan.
  2. Raðið síðan saman á eftirfarandi máta: rósakál í botninn, næst rauðlaukur og avókadó. Síðan Mango Lime Salsa, rækjur, Habanero Mango Aioli (sett í sprautu eða skeið notuð) og loks toppað með kóríander.
taco

Risarækjur í þessari sósu hér eru svoooo góðar!

góð salsa sósa

Þessi salsasósa er síðan öðruvísi en sú klassíska og passar ótrúlega vel með!

salsa sósa

Síðan var ég með klassísku salsasósuna með ásamt nachos flögum.

Risarækjur

Deila uppskriftinni

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Flokkar

0
0
Karfan þín
Karfan er tómNetverslun