„Turkish eggs“ eða tyrknesk egg smakkaði ég fyrst þegar ég fór í bröns á veitingastaðnum Sól í Hafnarfirði með vinkonum mínum. Ég hafði aldrei fengið svona áður og heillaðist strax, bæði af útlitinu og bragðinu. Þetta er einfalt og til dæmis frábært í brönsinn, einnig hægt að gera tvöfalda eða stærri uppskrift og setja á stærri bakka fyrir fleiri til að deila með ristuðu baguette brauði.
Lítur út fyrir að vera flóknara en það er, þetta tekur enga stund og ég mæli með að þið prófið!

„Turkish Eggs“ uppskrift
Fyrir tvo
- 250 g grísk jógúrt frá Gott í matinn
- 2 hvítlauksrif rifin
- 2 msk. saxað kóríander
- 1 sítróna (börkurinn)
- 4 egg
- 2 msk. ólífuolía
- 30 g smjör
- 2 tsk. chillimauk
- Salt og pipar
- Ristað baguette brauð
- Pískið saman gríska jógúrt, rifinn hvítlauk, kóríander og rifinn sítrónubörk. Kryddið eftir smekk.
- Skiptið blöndunni niður á tvo diska og smyrjið aðeins úr henni.
- Ristið baguette sneiðar í ofni við 200° með smá ólífuolíu þar til þær brúnast örlítið (3-5 mín).
- Útbúið hleypt egg með því að sjóða vatn í potti, þegar suðan er komin upp má lækka aðeins hitann og búa til spíral í vatnið með því að snúa því í hringi með sleif. Brjótið hvert egg í bolla og setjið eitt egg í einu útí vatnið. Leyfið um 10 sekúndum að líða á milli eggja. Stillið klukkuna á 3 mínútur og veiðið eggin svo uppúr með gataspaða og færið yfir á eldhúspappír. Gott er að gera tvö egg í einu til að ruglast ekki á þeim.
- Bræðið á meðan ólífuolíu, smjör og chillimauk saman og setjið réttinn loks saman.
- Leggið tvö egg ofan á jógúrtblönduna á hvorum disk, skiptið chilli-olíunni á milli með því að setja hana yfir og toppið með smá rifinni sítrónu og kóríander.
- Njótið með ristuðu baguette.

Mmmm þetta var svo gott að ég verð að prófa þetta strax aftur núna um helgina!

Mér finnst gott að dýfa ristuðu baguette brauði í réttinn en það má nota hvaða kex/brauð sem ykkur finnst gott.



































