Gúllassúpa eins og í Austurríki



⌑ Samstarf ⌑
gúllassúpa

Þegar við vorum í skíðaferð í Sölden í febrúar var ansi oft keypt gúllassúpa í hádeginu. Ég hafði aldrei útbúið slíka en sannarlega keypt í skíðaferðum svo mér fannst kominn tími til að prófa þetta. Útkoman var dásamleg og þessi uppskrift verður sannarlega útbúin oftar hér á þessu heimili í framtíðinni!

Holl, matarmikil og góð!

gúllassúpa

Gúllassúpa eins og í Austurríki

Fyrir 4-5 manns

  • 800 g nauta innlæri/annað svipað
  • 1 x laukur (saxaður)
  • 3 hvítlauksrif
  • 250 g gulrætur (niðurskornar)
  • 500 g litlar kartöflur
  • 2 msk. Hunt‘s tómat paste
  • 2 msk. ungverskt paprikukrydd (eða sætt paprikuduft)
  • 50 ml Muga rauðvín
  • 1 l vatn
  • 3 msk. Oscar fljótandi nautakraftur
  • 2 lárviðarlauf
  • Salt og pipar
  • Ólífuolía
  • Maizenamjöl
  1. Skerið kjötið niður í munnstóra bita, steikið upp úr ólífuolíu, kryddið með salti og pipar, færið yfir á disk þegar það hefur brúnast og vökvinn gufað upp.
  2. Notið sömu pönnu áfram, ekki skola á milli. Bætið ólífuolíu á hana og steikið laukinn þar til hann fer að mýkjast.
  3. Bætið þá gulrótum á pönnuna og rífið niður hvítlaukinn. Kryddið með paprikukryddinu, salti, pipar, tómat paste og blandið öllu saman stutta stund.
  4. Hækkið þá hitann aðeins og hellið rauðvíninu út á grænmetið, leyfið því að gufa upp að mestu og bætið þá vatni, krafti og lárviðarlaufum saman við. Þykkið með maizena eftir smekk (ég notaði 3-4 msk).
  5. Skerið kartöflurnar niður og bætið þeim í pottinn ásamt steiktu kjötinu, blandið saman, lækkið hitann og leyfið að malla að lágmarki í 40 mínútur eða þar til kartöflur og gulrætur mýkjast.
  6. Smakkið til og kryddið eftir smekk.
gúllassúpa eins og í austurríki

Ég elska þennan kjötkraft og nota hann í nánast alla matargerð!

ungversk gúllassúpa

Namm!

Þessi færsla er unnin í samstarfi við Gerum daginn girnilegan!

Deila uppskriftinni

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Flokkar

0
0
Karfan þín
Karfan er tómNetverslun