Hvernig hljómar kvöldmatur á kortéri? Þessar einföldu pítur með grísku ívafi eru ótrúlega góðar og öll fjölskyldan kunni vel að meta þessa fljótlegu máltíð!
Mæli svo mikið með!

Grískar pítur með kjúklingi
Hráefni í 2 x stórar (fyrir 2-4 manns)
- 2 x Liba flatbrauð
- Um 300 g eldaður kjúklingur (ég notaði tilbúna kebab strimla en það má nota hvaða kjúkling sem er)
- Chovi Allioli hvítlausdressing
- Romaine salat
- Piccolo tómatar
- Agúrka
- Rauðlaukur
- Fetaostur (valkvætt)
- Hitið/eldið kjúklinginn á pönnu.
- Skerið grænmetið niður.
- Hitið Liba brauðið á pönnu á háum hita í stutta stund sitthvoru megin.
- Smyrjið með Chovi Allioli og setjið vel af kjúklingi og grænmeti á annan helminginn á brauðinu.
- Klemmið síðan saman með hinum helmingnum og skerið í tvennt.
- Hvert flatbrauð er frekar stórt og ég myndi segja það jafnist á við tvö hefðbundin pítubrauð.

Það passar mjög vel að smyrja vel af Chovi Allioli yfir botninn!

Þessi flatbrauð eru síðan svo góð!



































