Elsta dóttir mín útskrifaðist með BSc gráðu í rekstrarverkfræði á dögunum. Við frestuðum veisluhöldum þar til um síðustu helgi þar sem við vorum fyrst í skíðaferð og síðan fór hún til Dubai og Tælands með vinkonu sinni í útskriftarferð. Við buðum fjölskyldu og nánustu vinum í „kokteilboð“ og síðan komu vinkonur hennar síðar um kvöldið í partý.
Sjá þessa fallegu og duglegu stelpu sem ég á!

Veislan heppnaðist vel og það er svo gaman að fagna öllum áföngum í lífinu! Ég fékk ótal spurningar á Instagram svo ég ákvað að svara þeim öllum hér í máli og myndum! Set síðan hlekki á allt sem ég finn neðst í færslunni til að einfalda ykkur lífið í leitinni.

Við vorum með smárétti frá Nomy eins og svo oft áður og almáttugur þetta var allt svo gott! Allir í veislunni voru að tala um hversu góður maturinn væri og ég get ekki mælt nægilega vel með þessari frábæru veisluþjónustu, getið 100% treyst þessum gæðum!

Þessi hér biti er nýr hjá Nomy og þetta er Bruchetta með straciatella kremi, pestó, coppa de parma og harissa hunangi. Mögulega nýji uppáhalds bitinn minn þó ég geti ekki gert upp á milli.

Kjúklingaspjót í Teriyaki eru þau allra mýkstu og bestu!

Ég var spurð hvort ég væri með lista yfir þær veitingar sem við buðum uppá og hér koma þær hvað varðar matinn. Set síðan lista yfir sæta bita og þess háttar hér aðeins neðar.
- Kjúklingaspjót Teriyaki
- Svepparist
- Grísaborgari
- Nauta Tataki
- Frönsk rist
- Kóngarækja „Chermoula“
- Nobashi rækja
- Lambalundir Gremoulata
- Bruchetta með straciatella kremi
Ég pantaði 10 bita veislu hjá Nomy fyrir 45 manns þó svo að um 60 manns hafi mætt í veisluna þar sem sætir bitar voru ekki inn í þessari pöntun og einnig gerði ég ostabakka. Það var nokkuð passlegt magn, einhverjir bitar voru afgangs en þeir voru vel nýttir næsta dag. Best er að fá þau hjá Nomy til að aðstoða ykkur við að áætla magnið. Síðan er hægt að velja ákveðna matseðla af síðunni þeirra eða setja saman sinn eigin með því að velja úr smáréttum líkt og ég gerði hér.

Mér finnst gaman að raða veitingum fallega upp og er alltaf búin að stilla upp veisluborði með bökkum, stöndum og skreytingum áður en ég fer að raða matnum á borð. Ég set post-it miða á hvert fat til að átta mig á því hvað ég þar mikið af slíku og síðan reyni ég að raða veitingunum þétt og fylli svo á eftir þörfum.

Það léttir manni lífið að panta veitingar og best er auðvitað að reyna að fá alla þá aðstoð sem býðst þar sem handtökin eru mörg. Það þarf stilla öllu upp fyrir veislu, raða á borðið, ganga frá jafnóðum og allt þetta! Ef fólk er að búa sjálft til mikið af veitingum þá er gott að hafa í huga að reyna að velja rétti sem hægt er að frysta og hita upp og fá aðstoð við rétti sem útbúa þarf samdægurs.

Ég var að þessu sinni með litla pappadiska og kokteilservíettur og þemað var í náttúrulitunum. Við vorum að vinna með brúnt, sandlitað, svart og hvítt í skreytinum og kom það mjög vel út. Ég keypti partýdót í Partýbúðinni og blóm í Garðheimum. Ég á flesta standa/bakka/kertastjaka o.þ.h sjálf nema ég fékk þessa svörtu IKEA bakka sem eru undir kökurnar og sætu bitana lánaða hjá vinkonu. Svo fallegir en því miður eru þeir ekki til þar lengur.

Varðandi sæta bita þá gerði ég hluta sjálf og keypti hluta hjá vinkonum mínum í 17 Sortum. Þær gera allt upp á 10+ og eru töfrakonur þegar kemur að kökuskreytingum.

Harpa Karin bakaði sjálf kökuna sem ég síðan skreytti fyrir hana. Hún er súkkulaðikaka með súkkulaði smjörkremi og ganaché kremi. Kransakökuskálina keypti ég hjá 17 Sortum og síðan elska ég að hafa alls kyns sæta bita og keypti ég hluta og gerði hluta sjálf. Hér kemur listi yfir sætar veitingar.
- 10 manna súkkulaðikaka
- Kransakökuskál fyllt með kransakökubitum ( 17 sortir)
- Sörur 30 stk (17 sortir)
- Makkarónur 30 stk (17 sortir)
- Kökupinnar um 50 stk
- Döðlugott um 30 stk
- Nóakroppsbitar um 30 stk
- Mini donuts 40 stk (17 sortir)
- Súkkulaðimús um 20 stk

Ég ELSKA kransaköku/kransakökubita og það er virkilega fallegt að bjóða upp á slíka bita í svona fallegri kransakökuskál. Það var ekki svo mikið eftir af þessum sætu bitum en kakan var ósnert, enda finnst mér þær ansi oft enda sem skraut og enginn þorir að skera í þær, hahaha! Held það sé ráð að taka hana bara niður í næstu veislu og skera niður í sneiðar til að fólk smakki á henni!

Á ostabakkann raða ég alltaf blandi af ostum (Feykir og Auður eru í uppáhaldi), berjum, kjöti, kexi, sultu og súkkulaði. Hér setti ég Gullost ofan á Dalahring til að gera svona „ostaköku“ haha!

Varðandi drykki þá var ég með alls kyns gos og sódavatn í bland, freyðivín (óáfengt og áfengt) ásamt bjór (óáfengum og áfengum). Síðan útbjuggum við „kokteilahorn“ fyrir stelpurnar þar sem þær græjuðu sér sjálfa kokteila um kvöldið.

Við elskum að fagna svona dögum með besta fólkinu okkar! Það er vissulega mikil vinna að halda svona veislu en það er bara svo gaman og lífið er of stutt til að gleðjast ekki og hittast sem oftast!

Upplýsingar og hlekkir eftir spurningabox á Instagram!
- Veitingar – allar matarkyns veitingar komu frá Nomy veisluþjónustu
- Veitingar – sætir bitar frá 17 sortum í bland við heimagerða
- Partýdót – frá Partýbúðinni (diskar, servíettur, rósettur, blöðrur, perlur o.fl). Það er ekkert mál að gera blöðruboga heima, fáið ráðleggingar hjá starfsfólki Partýbúðarinnar.
- Blóm og kerti – Garðheimar (keypti mismunandi búnt og setti saman ásamt því að klippa birkigreinar úr garðinum)
- Kjóllinn hennar Hörpu – pantaður á NAKD
- Bakkar & standar – gamlir IKEA standar eru undir sætu bitana og annað er í einkaeign. Það eru þó ýmsir standar hér á síðunni sem hægt er að leigja fyrir veislur
- Plastglös undir súkkulaðimús koma frá Amazon
- Kökuskilti – Hlutprent


































