Croissant eggjabaka



⌑ Samstarf ⌑
eggjabaka með croissant

Ef þig langar að mæta með eitthvað nýtt í brönsinn þá er þessi eggjabaka hér guðdómleg! Fullkomin líka fyrir komandi páska-frídaga og í raun mætti þetta líka verða hádegis- eða kvöldverður!

Namm!

bröns hugmyndir

Croissant eggjabaka

  • 4 croissant (klassísk – ófyllt)
  • 12 egg
  • 250 ml rjómi
  • 2 msk. Dijon Sinnep Old style
  • 80 g rifinn piparostur
  • 80 g rifinn ostur
  • 200 g skinka
  • 6 beikonsneiðar (stökkar)
  • 3 msk. graslaukur + meira til skrauts
  • 1 tsk. paprikuduft
  • 1 tsk. hvítlauksduft
  • 1 tsk. salt
  • ½ tsk. pipar
  1. Hitið ofninn í 200°C.
  2. Skerið croissant stykkin niður í munnstóra bita og setjið í botninn á eldföstu formi.
  3. Pískið saman egg, rjóma, dijon sinnep og krydd.
  4. Skerið niður skinku og saxið graslauk, blandið saman við ásamt báðum tegundum af rifnum osti.
  5. Hellið yfir croissant bitana, saxið beikonið niður og dreifið úr því yfir blönduna ásamt smá meiri graslauk.
  6. Bakið bert í 20 mínútur, leggið þá álpappír laust yfir og bakið áfram í 15 mínútur.
  7. Leyfið bökunni aðeins að standa og njótið síðan.
eggjakaka

Sinnepið kemur með punktinn yfir i-ið þegar kemur að fyllingunni!

hugmyndir fyrir brönsinn

Ég sá svipaða útfærslu hjá Tatyana’s Everyday Food og mátti til með að útbúa mína útfærslu af svona dásemd.

Deila uppskriftinni

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Flokkar

0
0
Karfan þín
Karfan er tómNetverslun