Eins og margir hafa eflaust tekið eftir er búið að vera ákveðið æði í gangi með sætar kartöflur, hakk, avókadó og svo ýmist chipotle, kotasælu eða eitthvað allt annað. Hér er á ferðinni smá „taco-style“ sætkartöflusteik sem var alveg dúndurgóð máltíð sem még mæli með að þið prófið! Það verður að minnsta kosti að segjast að sæt kartafla, hakk og avókadó er ákveðin þrenna sem gengur vel upp!
Namm!

Sætkartöflusteik
Fyrir um 4 manns
- 2 x stór sæt kartafla
- 500 g nautahakk
- 1 x poki tacokrydd
- 4 x avókadó
- Kóríander
- Chipotle sósa (sjá uppskrift að neðan)
- Filippo Berio ólífuolía til steikingar
- Salt og pipar
- Skerið kartöflurnar í 8 sneiðar sem eru um 2 cm á þykkt.
- Raðið á bökunarplötu, penslið með ólífuolíu og saltið og piprið.
- Bakið við 200°C í um 30 mínútur eða þar til þær mýkjast í gegn.
- Steikið hakkið á meðan og kryddið með taco kryddi, skerið avókadó og kóríander niður og pískið í chipotle sósuna.
- Raðið saman: kartöflusneið, vel af hakki, chipotle sósa, ½ avókadó á hverja sneið og vel af kóríander.
Chipotle sósa uppskrift
- 120 g Heinz majónes
- 70 g sýrður rjómi
- 1 x lime (safi + börkur)
- 1 tsk. reykt paprikuduft
- 1 tsk. hvítlauksduft
- ½ tsk. cheyenne pipar
- Pískið allt saman og geymið í kæli fram að notkun.

Mmm….

Þessi færsla er unnin í samstarfi við Gerum daginn girnilegan!


































