Hér er á ferðinni dásamleg eggjabaka með smjördeigsbotni. Einfalt að útbúa og fullkomin fyrir brönsinn eða sem kvöldverður.
Svo gott!

Quiche baka – uppskrift
- 1 x upprúllað „Puff Pastry“ eða smjördeig
- 6 x beikonsneiðar
- 1 x laukur
- ¼ brokkolihaus
- 8 egg
- 200 ml rjómi frá Gott í matinn
- 50 g rifinn cheddar ostur frá Gott í matinn
- 100 g rifinn pizzaostur frá Gott í matinn
- Smjör til steikingar
- Salt, pipar og hvítlauksduft
- Vorlaukur
- Hitið ofninn í 180°C.
- Smyrjið bökuform vel að innan með smjöri.
- Rúllið deiginu yfir og komið því fyrir í forminu og þrýstið upp hliðarnar. Klípið deig af til þess að þekja alveg botninn og kantana, þjappið því saman með fingrunum.
- Steikið beikonið þar til það er stökkt og skerið niður.
- Steikið lauk og brokkoli upp úr smjöri, kryddið eftir smekk og dreifið úr grænmetinu yfir smjördeigsbotninn.
- Pískið næst saman egg, rjóma og osta, kryddið eftir smekk og hellið yfir grænmetið.
- Leggið álpappír yfir og bakið í 40 mínútur, fjarlægið þá álpappírinn og bakið áfram í um 10 mínútur eða þar til toppurinn fer að gyllast.
- Leyfið að standa í 10-15 mínútur áður en þið skerið í sneiðar og toppið með niðurskornum vorlauk.

Ostur gerir allar eggjakökur betri!



































