Pringles með súkkulaði



⌑ Samstarf ⌑
pringles dipped in chocolate

Þegar þú breytir snakki í nammi!

Ég mátti til með að prófa Pringles+súkkulaði og þetta er algjör snilld. Ég var búin að sjá mikið af myndböndum á netinu þar sem staukurinn er fylltur upp með súkkulaði, látið harðna og síðan skorið niður en mér finnst þetta miklu girnilegra svona! Fullkomið nammisnakk og sniðugt til að bjóða uppá í veislum eða kósýkvöldinu.

Einfalt og svo skemmtilegt!

pringles með súkkulaði

Pringles með súkkulaði

  • 1 x Pringles staukur original
  • 200 g Síríus suðusúkkulaði
  • 200 g Síríus rjómasúkkulaði
  • Síríus súkkulaðiperlur
  • Eitt sett lakkrískurl
  1. Bræðið báðar tegundir af súkkulaði í sitthvorri skálinni.
  2. Takið um lúku af súkkulaðiperlum og lakkrískurli og saxið smátt niður á sitthvoru brettinu.
  3. Dýfið síðan Pringles flögunum til skiptis í dökkt og ljóst súkkulaði og toppið með súkkulaðiperlum og lakkrískurli.
chocolate pringles

Þetta var ekki lengi að hverfa á mínu heimili!

snakk með súkkulaði
Deila uppskriftinni

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Flokkar

0
0
Karfan þín
Karfan er tómNetverslun