Hér hafið þið eitt það besta Pulled Pork sem ég hef útbúið! Þetta kjöt og þessi sósa var hin fullkomna blanda og allir voru sammála um það!
Namm…

Pulled Pork Taco
Fyrir 6-8 manns
„Pulled Pork“ eða rifið grísakjöt
- 1,5 kg grísahnakkafille (svínahnakki, svínabógur)
- 2 tsk. salt
- 1 tsk. pipar
- 1 msk. hvítlauksduft
- 1 msk. paprikuduft
- 2 msk. púðursykur
- 1 krukka Pulled Pork Simmering Sauce frá Stonewall Kitchen
- 1 laukur
- Ólífuolía
- Hitið ofninn í 150°C.
- Blandið kryddum + púðursykri saman og berið á grísahnakkann á öllum hliðum.
- Brúnið kjötið upp úr ólífuolíu á öllum hliðum.
- Skerið laukinn í þykkar sneiðar og raðið undir kjötið þegar það hefur brúnast.
- Hellið um ½ krukku af Simmering Sauce yfir kjötið, setjið lok á pottinn og inn í ofninn.
- Eldið í 3,5 klukkustundir eða þar til kjötið rifnar auðveldlega í sundur með gaffli.
- Veiðið fituna frá (finnið áferðina þegar þið eruð að tæta í sundur) til að koma í veg fyrir að blanda henni saman við kjötið.
- Hellið restinni af Simmering sósunni saman við, hitið aðeins á hellu og blandið vel saman.
- Raðið saman í taco – vefja, hrásalat, pikklaður rauðlaukur, kjöt, fetaostur, maísbaunir, kóríander og Chipotle Aioli (sjá að neðan).
Kóriander og lime hrásalat
- ¼ hvítkálshaus
- ¼ rauðkálshaus
- 1 x lime (safinn)
- 2 msk. kóríander saxað
- 100 g sýrður rjómi
- Salt og pipar
- Skerið kálið í þunna strimla og blandið öllu saman.
Pikklaður rauðlaukur
- 3 x rauðlaukur
- 250 g sykur
- 250 ml vatn
- 150 ml edik
- 1 tsk. salt
- Skerið laukinn niður í heilar sneiðar og setjið í box/krukku.
- Sjóðið annað saman þar til sykurinn er uppleystur, hellið yfir laukinn, setjið lok yfir og inn í ísskáp í að minnsta kosti klukkustund (geymist síðan í vel lokuðu íláti í um 10 daga í ísskáp).
Annað hráefni
- Litlar vefjur
- Fetaostur (mulinn kubbur)
- Ristaðar maísbaunir (saxaðar)
- Saxað kóríander
- Stonewall Kitchan Chipotle Aioli

Þessi sósa er svoooo góð!



































